Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

Nýtt nafn: Ás styrktarfélag samþykkt á aðalfundi.

Á aðalfundi félagsins var samþykkt tillaga stjórnar um breytingu á 1. grein laga um nafn félagsins og varnarþing þess.

  

48 atkvæði voru greidd.

33 voru samþykkir en 15 voru á móti.

Nýtt nafn félagsins verður því Ás styrktarfélag.

  

Nýtt nafn hefur í för með sér ýmsar breytingar

Félagið fær nýtt merki, nýtt útlit heimasíðunnar og ný bréfsefni og fleira.

  

Nú á 50 ára afmælisári félagsins gefst tækifæri til kynningar á félaginu.

Til dæmis hvað það stendur fyrir og hver verður stefna þess í framtíðinni.


  

Nýtt fréttablað frá Lækjarási: Ýtið hér til að skoða það




 
Námsferð starfsfólks Bjarkaráss til Frankfurt


Þann 17. maí fór 17 manna hópur í námsferð til Frankfurt í Þýskalandi. 
Tilgangur ferðarinnar var að skoða þjónustu við fatlað fólk þar. 

Við skoðuðum tvo staði, vinnustað og heimili. Vinnustaðurinn heitir RehaWerkstatt Oberrad. Þar vinna um 100 manns, mest geðfatlað fólk. 

 

Starfsemin þar er margþætt. Meðal annars er mikið um ýmiskonar tölvuvinnu, samsetningar-verkefni fyrir bílaiðnaðinn og samsetningar á rafmagnsvörum.

 

Einnig eru þar hópar á ýmsum sviðum iðngreina sem taka að sér verkefni úti í bæ. Til dæmis málningarvinna, lagningu gólfefna, húsgagnasmíði og fleira.    

 

Járnsmiðja er einnig á staðnum þar sem meðal annars eru framleiddir loftræsti-stokkar.  Þessi vinnustaður rekur verslun í miðbæ Frankfurt þar sem seldar eru vörur framleiddar hjá þeim.

                               

Yfirmenn vinnustaðarins tóku mjög vel á móti okkur og fræddu okkur um  umfang dagþjónustu í borginni.

 


Heimilið sem við skoðuðum var fjögurra manna íbúð í mjög stóru fjölbýlis-húsi í eigu borgarinnar. Bærinn hefur sett þau markmið að í húsinu búi breiður hópur fólks og eru íbúðirnar ýmist á almennum leigumarkaði eða niðurgreiddar af félagsmála-yfirvöldum. 

 

Íbúðin sem við skoðuðum var ein af átta sem fengu þjónustu hjá sama starfsmanna-hópi.  Að auki voru 12 íbúðir annars staðar í húsinu, en þar býr fólk sem þarf minni aðstoð, ekki ólíkt frekari liðveislu. Þjóðverjarnir voru mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag sem er nýtt hjá þeim.

 


 

Ný stjórn kosin.

 

Aðalfundur félagsins var haldinn í Kiwanishúsinu við Engjateig laugardaginn 24. mars  og var hann vel sóttur.

Þær breytingar urðu á stjórn að Friðrik Alexandersson sem sinnt hafði formennsku í 8 ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Í hans stað var kosinn Sigurður Þór Sigurðsson, sem setið hafði í aðalstjórn.

Helga Steinunn Hauksdóttir gaf ekki kost á sér til stjórnarsetu en Elsa Sigríður Jónsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir tóku sæti í aðalstjórn.

Í varastjórn voru kjörnir Bergur Bergsson og Sigurður Sigurðsson til eins árs í senn.

Sjá nánar

Fráfarandi stjórnarmenn voru leystir út með gjöfum og þakkað vel unnin störf.

                      Sigurður Þór Sigurðsson

 

 

 


 

Nýtt sambýli í Langagerði 

   
Þann 8. feb. sl. tók Magnús Stefánsson félagsmála-ráðherra, ásamt Friðriki Alexanderssyni formanni Styrktarfélags vangefinna, skóflustungu að nýju húsi að Langagerði 122 í Reykjavík. 

  

Nýbyggingin er liður í búsetuþróun félagsins sem lítur að því að stuðla að og byggja upp ný búsetutilboð eins og best gerist fyrir fólk með þroskahömlun.  

Þetta var merkur áfangi og mikill hátíðisdagur fyrir félagið.  Alls er húsið um 375 fermetrar. með 5 íbúðum fyrir fatlaða og reiknað  með að það verði komið í búsetu á 50 ára afmælisdegi félagsins 23. mars 2008.




 
Samningur við Eflingu


Skifað var undir kjarasamning við Eflingu sem gildir fyrir fatlaða starfsmenn 2. febrúar 2007.


Kynningarfundur fyrir starfsmenn Áss og Bjarkaráss var haldinn 22. mars.
Fulltrúar Eflingar kynntu samninginn. Fulltrúar frá Styrktarfélaginu kynntu starfsmat sem verið er að vinna.


Stefnt er að því að borga út samkvæmt nýjum kjarasamigi 1. maí.
Ljóst er að um talsverða kjarabót er að ræða og er þessi samningur enn eitt skrefið í átt til aukins réttar fólks með fötlun að betri lífsgæðum.


Með samningnum fær fólk rétt á lífeyrisgreiðslum og orlofi, auk þess að það hefur möguleika á því að sækja öll þau námskeið sem í boði eru á vegum Eflingar til aukinnar menntunnar.


Þar að auki öðlast þau rétt til að nýta sér öll þau orlofsúrræði sem í boði eru, hvort sem um sumarhús til leigu er að ræða, eða húsnæði í eigu félagsins erlendis, að uppfylltum þeim skilyrðum sem þurfa til umsóknar vegna þeirra.


Nokkuð vel gekk að kynna samninginn fyrir gestum fundarins og það leyndi sér ekki að mikill áhugi var fyrir honum, ef marka má mætinguna og umræðurnar sem sköpuðust á fundinum.

 


Breyttur lífstíll


Tilraunaverkefni Styrktarfélagsins um breyttan lífsstíl hjá einstaklingum með þroskahömlun tekur á einu helsta heilsufars-vandamáli í Evrópu, offitu.


Breyttur lífsstíll er þróunarverkefni Styrktarfélagsins. Í verkefnis-lýsingu segir að einstaklingar með þroskahömlun glími við ofþyngd eins og aðrir. Það sem skilji þá frá öðrum sé hve aðgengi þeirra að fræðslu um hreyfingu og hollt matarræði sé takmarkað. Félagið vill stuðla að hugarfars-breytingu á þessum vettvangi með velferð fatlaðra að markmiði.

Námskeið


Námskeiðið er ætlað þeim sem eru komnir með alvarlega fylgikvilla ofþyngdar, en geta ekki nýtt sér hefðbundin megrunartilboð eins og  þau sem Reykjarlundur býður upp á.


Vonandi getur verkefnið endað sem námsbraut eða námskeið sem framhaldsskólar, fullorðins-fræðsla, líkamsræktar-stöðvar og heilbrigðis-stofnanir geti nýtt sér.


Verkefnið er tvískipt, fram til 1. júní verður það í námskeiðsformi kl. 9–15 fimm daga vikunnar, en 1. júní til 1. febrúar 2008 verða vikulegir fundir, með vigtun o.fl.


Að flytja að heiman

Þessi bók fjallar um það, þegar þroskahamlað fólk flytur að heiman. Hún er gagnleg lesning fyrir þá sem eru að undirbúa slík umskipti og foreldra þeirra. 

Fjallað er um þá hluti sem hyggja þarf að þegar slíkar breytingar standa fyrir dyrum og hvernig takast má á við ýmislegt sem getur komið upp í því samhengi.  Einstaklingar sem gengið hafa í gegn um þetta ferli lýsa reynslu sinni í bókinni.


Hægt er að nálgast bókina á skrifstofu félagsins að Skipholti 50c, og kostar hún kr. 1.000.-


 


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir