Búseta
Ás styrktarfélag starfar samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992 og reglugerð um búsetu nr. 296/2002, þar er nánar fjallað um búsetukosti og þjónustu.
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
Ás styrktarfélag rekur 9 sambýli víðs vegar um borgina, þar af eru tvö sambýli með íbúðum, fjögur með ígildi íbúða (sér stofa og svefnherbergi) og sameiginlegu rými.
Í árslok 2004 bjuggu á sambýlum félagsins 44 einstaklingar á aldrinum 26 til 81 árs.
Styrktarfélagið veitir 19 einstaklingum í 13 íbúðum þjónustu í formi frekari liðveislu. Sextán af þeim fá einnig þjónustu í formi heimilisaðstoðar frá Félagsþjónustunni í Reykjavík og tveir hafa liðveislu. Íbúar eru á aldrinum 23- 61 árs.
Í maí 2003 var samþykkt á stjórnarfundi búsetustefna fyrir félagið til ársins 2010. Stefnunni fylgir framkvæmdaáætlun sem er farið að vinna eftir. Nánari upplýsingar um stefnuna má finna á heimasíðunni.
Í búsetuþjónustunni er unnið út frá lögum og reglugerðum, ríkjandi hugmyndafræði auk þess sem tekin eru mið af gildum og framtíðarsýn félagsins.
Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu. Virðing fyrir einstaklingnum og sjálfræði hans skal vera leiðarljós í allri þjónustu. Horft er til þess að allir njóti ákveðinna lífsgæða, taki þátt í samfélaginu á eigin forsendum, hafi einkarými og njóti friðhelgi á eigin heimili.





