Frekari liðveisla
Frekari liðveisla aðstoðar íbúa sem búa víðsvegar um borgina í íbúðum sem eru ýmist í eigu þeirra sjálfra, félagsins eða annarra aðila og er þeim skipt í tvö hverfi.
Frekari liðveisla veitir aðstoð samkvæmt lögum um málefni fatlaðra. Nánari skilgreiningu er að finna í reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu. Þar stendur í 3. gr. lið d; "Frekari liðveiðsla þ.e. margháttuð aðstoð við athafnir daglegs lífs sem tekur meðal annars mið af einstaklingsbundnum þörfum fólks með hliðsjón af óskum þess eða aðstandenda".
Frekari liðveisla Áss styrktarfélags sinnir einnig félagslegri heimaþjónustu skv. þjónustusamning milli félagsins og Reykjavíkurborgar. Markmiðið er að veita einsaktlingsmiðaða, persónulega aðstoð við daglegt lif.





