Dagþjónusta / Vinna
Í dag veitir Ás styrktarfélag hátt á þriðja hundrað manns þjónustu í formi búsetu, dagþjónustu og atvinnuúrræða. Félagið hefur ávallt kappkostað að vera í fremstu röð varðandi gerð þessarar þjónustu, að hún samræmist þeim viðmiðum sem eðlileg þykja, og unnið sé að því að jafna aðgengi fólks til jafnra tækifæra með virðingu fyrir getu hvers einstaklings.






