fréttir frá Ási
Special Olympic keppandi komin heim
Soffía Rúna Jensdóttir Special Olympic fari kom heim um helgina eftir frækilega för til Kína. Hún vann til þrennra verðlauna á mótinu og voru það tveir bronspeningar og einn gullpeningur fyrir keppni í borðtennis. Við hér í Ási erum stolt af okkar konu og óskum henni hjartanlega til hamingju með verðlaunin.





