fréttir frá Ási
30. nóvember 2009
Ás vinnustofa - Ísland í dag
Þann 26.nóvember síðastliðinn var fjallað um starfsemi Áss vinnustofu í Ísland í dag á Stöð 2. Umfjöllunin vakti mikil og góð viðbrögð. Við hér í Ási vinnustofu höfum orðið var við mikinn áhuga á starfi okkar eftir þennan þátt og hefur verið mikið hringt í okkur og spurt um framleiðsluvörur okkar. Fyrir þá sem misstu af þættinum er hægt að sjá hann hér.
16. október 2009
Bleikur dagur 16.október 2009
Í dag var haldinn bleikur dagur í Ási vinnustofu og skapaðist góð stemming hjá öllum. Margir mættu í sínu fínast bleika dress og skemmtu sér vel. Spilað var bingó og auðvitað voru bleikir vinningar. Einnig var boðið uppá bleikt meðlæti í kaffinu og eitthvað var um smá bleikt í hádegismatnum (sem vakti mismikla lukku).
15. apríl 2009
Opið hús og sumarmarkaður í Ási
Opið hús og sumarmarkaður!
Í tilefni af sumarkomu langar okkur í Ási vinnustofu að bjóða þér/ykkur að koma á opið hús þann 17.apríl 2009. Einnig verður hægt að kaupa ýmsar framleiðsluvörur Áss vinnustofu á góðu sumarverði. Verið velkomin í Brautarholt 6, 4.hæð frá kl. 13:00 – 15:30 Hlökkum til að sjá þig/ykkur!





