fréttir frá Ási
22. desember 2011
Gleđileg jól
9. desember 2011
Dagur rauđa nefsins
28. nóvember 2011
Ađventumarkađur Áss vinnustofu
29. september 2011
Klútamarkađur Ás vinnustofu 7. október
Klútamarkaður verður haldinn í Ási vinnustofu föstudaginn 7. október. Það verður opið frá 10.00 – 15.00 og eru allir velkomnir.
Þessi dagur er hinn árlegi bleiki dagur og við hvetjum alla starfsmenn til að mæta í bleiku og sýna samstöðu með Krabbameinsfélaginu.
Starfsmannafélagið Hallgerður ætlar að vera með smá sölu þennan dag, meðal annars á heilsubrauði, hummus, lakkrís, hafrakökum, töskum, svuntum og kúrekasmekkjum.
Ekki má gleyma gulrótunum en þeir sem hafa áhuga á að versla 1,8 kg af gulrótum á 1000 kr. geta sent póst fyrir miðvikudaginn 5. okt.og fengið afhent 6. eða 7. Hvað er betra en nýuppteknar gulrætur! J
Hægt að panta allt annað sem er til sölu og sækja þennan dag.
Kær kveðja og sjáumst hress og kát á klútamarkaði og bleikum degi í Ási vinnustofu!
9. september 2011
Ţjónustusamningur viđ Kópavogsbć
Samningur um þjónustu við fimm fullorðna fatlaða einstaklinga sem búa að Kastalagerði 7 í Kópavogi var í dag undirritaður af hálfu Kópavogsbæjar og Áss styrktarfélags. Markmiðið er að íbúar Kastalagerðis fái þá þjónustu sem mætir hvað best óskum þeirra, aðstæðum og þörfum.
Samninginn undirrituðu þær Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, og Guðrún Þórðardóttir, formaður Áss styrktarfélags. Að því búnu buðu íbúar Kastalagerðis til kaffisamsætis á heimili sínu.
Kópavogsbær tók sem kunnugt er yfir málefni fatlaðs fólks um áramótin og er samningurinn við Ás styrktarfélag liður í því ferli.
Í samningnum er m.a. kveðið á um að þjónustan við íbúana skuli vera einstaklingsbundin, heildstæð og sveigjanleg. "Skal hún veitt með það að markmiði að efla vald fólks yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd þess, sjálfstraust, félagslega stöðu, sjálfsvirðingu og lífsgæði."
Samningurinn gildir til ársloka 2014.
29. ágúst 2011
Afmćlishátíđ Stjörnugróf 7-9
Föstudaginn 26. ágúst héldu Lækjarás og Bjarkarás upp á 30 og 40 ára afmæli sín. Fjöldi góðra gesta kom og fagnaði þessum merku tímamótum.
Margt var til gamans gert og má þar nefna lifandi tónlist, myndlist frá ýmsum listamönnum og grænmetismarkað.
24. ágúst 2011
Afmćlishátiđ í Stjörnugróf
Í tilefni af 3o ára afmæli Lækjaráss og 40 ára afmæli Bjarkaráss verður afmælishátíð í Stjörnugróf 7-9 þann 26. ágúst n.k á milli kl 14.00-17.00.
Tónlist, leikir, léttar veitingar og grænmetismarkaður
11. ágúst 2011
Reykjavíkurmaraţon
Ás styrktarfélag þakkar þeim sem hlupu til styrktar félagsins í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir góðan stuðning. Þeim sem sýndu hlaupurunum hvatningu og stuðning með áheitum er einnig þakkað.
Áheitin renna til verkefnisins Breyttur lífstíll sem er átaksverkefni unnið í samvinnu við World Class. Á þeim námskeiðum er tekist á við breyttan lífstíl hjá fólki með þroskahömlun.
14. júlí 2011
Sumarlokun skrifstofu
Skrifstofa Áss styrktarfélags er lokuð vegna sumarleyfa frá 18. júlí til 5. ágúst.
Tekið er við minningarkortum fyrir hönd félagsins á Skálatúni í síma 530-6600.
Þeir sem þurfa að hafa samband í lokun er bent á netfang framkvæmdastjóra tora@styrktarfelag.is.
12. júlí 2011
Kjarasamningur viđ ţroskaţjálfa
Kjarasamningur milli Þroskaþjálfafélags Íslands og Áss styrktarfélags var samþykktur og sögðu 96,3% já af þeim sem tóku þátt í kosningunum. Samningurinn byggir á kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Þroskaþjálfafélagsins.
Á myndunum má sjá formann ÞÍ og framkvæmdastjóra Áss skrifa undir í lok júní.





