Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Starfsemi Áss vinnustofu

Starfsemin

Ás vinnustofa hóf starfsemi sína þann 22.október 1981. Í upphafi var Ás til húsa í Lækjarási við Stjörnugróf í 150 fermetrum. Þá störfuðu þar 12 einstaklingar með fötlun í heilum stöðum.  Árið 1984 flutti Ás starfsemi sína í Brautarholt 6 og við það fjölgaði starfsmönnum uppí 20 í 16 heilum stöðum. Það er síðan árið 1991 sem starfsemi Ás vinnustofu er komin í um 650 fermetra og eru stöður fyrir einstaklinga með fötlun orðin 30 og starfa í þeim að jafnaði 42 starfsmenn. 

Í Ási er lögð áhersla að skapa fólki með fötlun, með skerta starfsgetu, vinnuaðstöðu sem sniðin er að þörfum þess og getu. Lögð er áhersla á að efla sjálfsöryggi einstaklingsins, bæta fjárhag hans og starfshæfni, helst það mikið, að hann komist á almennan vinnumarkað. Á Ási er meðal annars unnið við:

Saumastofa

Ás vinnustofa hefur séð um sníðingu, saumaskap, pökkun og frágang á ýmsum gerðum heimilisklúta ásamt handklæðum, hárklæðum og bleium.  Vörur þessar er hægt að nálgast í Ási vinnustofu og Rekstravörum að Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík.

Endurskinsmerki

Ás vinnustofa sér um framleiðslu, pökkun og dreifingu á endurskinsmerkjum. Þau er hægt að nálgast í Ási og í flestum apótekum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Pökkun

Ás vinnustofa tekur að sér alhliðar pökkunarvinnu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Boðið er uppá plastpökkun í vélum en einnig er ýmsu handpakkað t.d tímaritum og geisladiskum. Einnig sér Ás vinnustofa um límmerkingar fyrir ýmiss fyrirtæki.

Ás er opinn alla virka daga vikunnar frá kl. 9.00 - 16.00.  

Ás vinnustofa - Brautarholti 6 - 105 Reykjavík - Kt. 461081-0109 - S. 414 0530

Sjá nánari upplýsingar:  http://as.hlutverk.is/default.asp 


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir