Fréttir frá Bjarkarási
Gönguhópur í Bjarkarási
Í dag tók til starfa gönguhópur í Bjarkarási. Þetta er liður í heilsueflingu okkar hér í Bjarkarási og er ætlunin að fara í u.þ.b. 1/2 klukkustunda gönguferðir á hverjum degi.
Góð þátttaka var í morgun, sem er vonandi ávísun á það sem koma skal.
List án landamæra
Listahátíðin List án landamæra verður opnuð formlega þann 18. apríl næstkomandi. Opnunarhátíðin fer fram í Ráðhúsi Rekjavík kl. 17:00 þann dag.
Að þessu sinni eru tveir listamenn úr Bjarkarási sem taka þátt í Samsýningu í Ráðhúsinu.





