Fréttir frá Bjarkarási
17. desember 2010
Annað uppboð
Föstudaginn 11. desember hélt Góði hirðirinn annað uppboð til styrktar Bjarkarási. Tónlistarmaðurinn KK stýrði þessu uppboði eins og því sem haldið var í nóvember. Að þessu sinni söfnuðust 301.200 kr. Heildarupphæðin sem Góði hirðirinn hefur safnað með þessu móti og gefið Bjarkarási, er því 687.200,- krónur. Formleg afhending fór fram í Góða hirðinum föstudaginn 17. desember þar sem einnig voru afhentir veglegir styrkir til ýmissa góðgerðarmála.
Bjarkarásfólk mun nýta styrkinn til kaupa á standlyftu og ýmsum tölvutengdum búnaði eins og snertiskjá og rofum.
Nánari upplýsingar um styrkveitingar Góða hirðisins má sjá á heimasíðu þeirra hér.8. desember 2010
Annað uppboð í Góða hirðinum
Föstudaginn 10. 12. Kl. 16:30 verður uppboð hjá Góða hirðinum í Fellsmúla 28. Verslunarstjórnin hefur ákveðið að endurtaka leikinn frá því síðast og gefa Bjarkarási allt sem kemur í kassann á uppboðinu. Í nóvember seldist fyrir 386.000,- kr. og dugar sá peningur fyrir standlyftaranum sem Bjarkarás hefur bráðvantað svo lengi.
Nú verður söluhagnaði varið til kaupa á ýmsum tölvubúnaði og jafnvel myndavél, fer allt eftir því hversu mikið kemur inn. Bjarkarás hvetur alla til að mæta því þetta eru stórskemmtilegar uppákomur sem tónlistarmaðurinn KK stjórnar af stakri snilld. Skoðið vef Sorpu, þar sem hægt er að sjá hvaða munir verða á uppboðinu.
8. desember 2010
Gjöf frá Kiwanisklúbbnum Heklu
Við kunnum þeim góðar þakkir fyrir og hér má sjá mynd frá afhendingunni.
22. nóvember 2010
Jólamarkaður í Bjarkarási
Laugardaginn 27. nóvember verður jólamarkaður í Bjarkarási, Stjörnugróf 9, kl. 13 – 16. Þar verða til sölu ýmsir listmunir sem meðal annars eru unnir úr gleri, tré, ull og leir. Einnig verða seld kerti úr nýrri kertagerð Bjarkaráss. Vinnustofan Ás verður með klúta, handklæði og sitthvað fleira.
Léttar veitingar á vægu verði.
Allir velkomnir.
Til að sjá prentvæna auglýsingu vinsamlegast smellið hér.
22. nóvember 2010
Gamlir munir til góðra mála
Ýtið hér á hnappinn að neðan til að sjá myndir.
18. nóvember 2010
Uppboð með KK í Góða hirðinum
16. júní 2010
Heilsuvika
Vikuna 31. maí til 4. júní var haldin heilsuvika í Bjarkarási og Lækjarási. Heilsuvikan er orðinn fastur liður í starfsemi staðanna og dagskráin orðin nokkuð fastmótuð. Föstu liðirnir eru göngutúrar tvisvar sinnum á dag og matseðillinn er á hollum nótum. Að þessu sinni byrjuðum við á að fá kennslu í að útbúa heilsudrykk sem allir geta gert heima og allir fengu að smakka.
12. apríl 2010
Gróðurhúsið Bjarkarási
Gúrkurnar eru komnar til sölu í gróðurhúsi Bjarkaráss. Eitthvað er til af kryddjurtum í pottum, s.s. basil, koriander, dill og timian. Einnig eru til í pottum mini tómatar, mini paprika og mini eggaldin plöntur. Það er ótrúlega spennandi að rækta í glugganum heima. Þessar plöntur eru til í takmörkuðu magni, fyrstir koma, fyrstir fá.
Verð á plöntum er:
- Tómatar, paprika og eggaldin 650 kr.
- Basil 450 kr.
- Dill 400 kr.
- Timian 450 kr.
- Koriander 450 kr.
Til að sjá auglýsinguna í prenthæfu formi ýtið hér.





