Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Starfsemin

Starfið í Bjarkarási

Bjarkarás hóf starfsemi sína í nóvember 1971. Í dag er þar rekin hæfingarstöð fyrir fullorðið fólk með þroskahömlun.

Megin starfsemin fer fram á 5 deildum auk gróðurhúss og Sels. Um 50 manns frá 20 ára aldri sækja þangað þjónustu og vinnu í viku hverri.

Stöðugildi leiðbeinenda eru 22,8. Þroskaþjálfar eru 9 talsins, 2 félagsliðar, 6 stuðningsfulltrúar, 2 garðyrkjufræðingar, starfsmenn í eldhúsi og ræsting. Umsjónarmaður fasteigna og matráður starfa sameiginlega fyrir Bjarkarás og Lækjarás.

Markmið

Markmið með starfsemi Bjarkaráss eru byggð á lögum Áss styrktarfélags og lögum um málefni fatlaðra. Meginmarkmið Bjarkaráss er að veita einstaklingsmiðaða og fjölbreytta þjónustu. Hver deild hefur að auki sín markmið. Þá eru einstaklingar hvattir til að setja sér markmið til að vinna að og fá aðstoð við það eftir þörfum.

Innra starf

Á þremur deildum, blöndu, hæfingu og sal, fær fólk þjálfun í færni sem þarf til starfa á vinnumarkaði. Þar er mikið um verkefni sem unnin eru fyrir ýmis fyrirtæki, má þar nefna blaðapökkun, umslagapökkun og álímingar. Fólk lærir meðal annars réttu handtökin, hvernig á að nota lokunarvélar og hvaða kröfur eru almennt gerðar um hegðun og framkomu á vinnustöðum.

Í Selið kemur fólk með einhverfu. Það þarf séraðlagað umhverfi til að finna til öryggis og vellíðunar. Þar er fengist við ýmsa hluti sem henta hverjum fyrir sig. Má þar nefna TEACCH verkefni, bakstur, tónlist og gönguferðir.

Betri stofan hentar þeim sem eru farnir að eldast eða tapa færni af öðrum sökum. Þar eru flest verkefni áhugatengd og áhersla lögð á að skapa rólegt og hlýlegt umhverfi. Þar er mikið um hannyrðir, andlits- og handsnyrtingu svo eitthvað sé nefnt.

Smiðjan er stór hluti starfseminnar í Bjarkarási. Þar fer fram skapandi starf og er afraksturinn seldur í Smiðjubúðinni og á jólamarkaði sem haldinn er í Bjarkarási í lok nóvember ár hvert. Í Smiðjunni gefst fólki kostur á að vinna eigulega hluti úr leir, gleri, ull, mósaík, tré og pappír.

Í gróðurhúsi fer fram lífræn ræktun grænmetis og sumarblóma. Öllum sem sækja þjónustu eða vinnu í Bjarkarás bíðst að taka þátt í ræktun, uppskeru, pökkun og sölu grænmetis ásamt þeirri jarðvegsvinnu sem óhjákvæmilega fylgir ræktuninni. Einnig hafa einstaklingar og hópar frá Lyngási, Lækjarási og Ási tekið þátt í starfsemi gróðurhússins.

Tengsl við aðra

Starfssemi Bjarkaráss tengist mörgum stofnunum og heimilum á höfuðborgarsvæðinu. Samstarfið er mismikið og er það metið eftir þörfum hverju sinni. Helstu tengiliðir eru heimili fólksins sem er hér á daginn, foreldrar þeirra og aðrir aðstandendur. Einnig eru mikil samskipti við aðra staði sem heyra undir Ás styrktarfélag og fulltrúa fyrirtækjanna sem við vinnum verkefni fyrir. Bjarkarás á aðild að Hlutverki, samtökum um vinnu og verkþjálfun. Þar eiga aðild fjölmargir vinnustaðir fatlaðra og hæfingarstöðvar víðsvegar af landinu.

 

Sjá nánari upplýsingar: http://bjarkaras.hlutverk.is/default.asp


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir