Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Dagur fyrir mig

  

Dagur fyrir mig, raunverulegt val!

Endurhönnun dagþjónustu

Ás styrktarfélag vinnur að því að gera grunnbreytingu á núverandi fyrirkomulagi í dagþjónustu. Í samræmi við heildarstefnu Áss styrktarfélags er miðað að því að öll dagþjónustutilboð séu vinna og hafi gildi sem slík. Tilboð séu mismunandi eftir starfsstöðvum og fólki gert fært að velja ólík tilboð eftir því sem hægt er. Ætlunin er að auka fjölbreytni og forðast stöðnun innan vinnustaða með þessari nálgun. Settur var af stað tilraunahópur með þátttöku 16 einstaklinga og valið var á milli 7 tilboða.


Ávinningurinn af þessum breytingum er m.a:

  • Fjölbreytt og einstaklingsmiðuð tækifæri til verkefna/vinnu.

  • Opið starfsumhverfi sem felur í sér flæði milli staða

  • Stuðlað að meiri fjölbreytileika og dregið úr fábreytni

  • Raunverulegt val um að gera eitt í dag og annað eftir umsaminn tíma

  • Fólk njóti þeirra mannréttinda, að geta valið hvar það vill vinna og í hvernig verkefnum

  • Að tryggja sérhæft starfsfólk í opnu starfsumhverfi

  • Að skapa góða yfirsýn yfir þau verkefni/vinnu sem í boði eru með aðgengilegum upplýsingum

  • Að virðing sé borin fyrir ólíkum þörfum, áhugamálum og vali á mismunandi lífsskeiðum einstaklingsins

  • Öll aldursskeið saman í vinnu eins og tíðkast á almennum vinnumarkaði

  • Vera ekki alltaf í félagsskap sama fólksins heima og að heiman - alla daga og til margra ára, án þess að raunverulegt val hafi ráðið því.

  • Aukin tækifæri til þátttöku á almennum vinnumarkaði

Í tilraunahópnum eru fjórir einstaklingar frá hverjum dagþjónustustað, 16 einstaklinga. Þessi hópur kallast Ísbrjótar. Verkefnið byrjaði 5. mars og því lýkur 27. apríl . Hver einstaklingur valdi á milli 7 tilboða en tvö af þeim voru vinsælust.

Í vali var:

 Verkefnavinna - Ás vinnustofa
   dagur1
 Verk að vinna , endurvinnsla - Lyngás
   dagur2
 Smiðja - Bjarkarás

   dagur3
 Virknihópur, Tákn með tali - Lækjarás
   dagur4
 Endurvinnsla kerta - Fossvogskirkjugarður    dagur5
 Umræðuhópur -Skrifstofa Áss styrktarfélags

   dagur6
 
  • Líkamsrækt / maraþon- Lækjarás
  •    dagur7
         
         

     

    Tilgangurinn með þessum tilraunahópi er að finna hnökra og prófa áður en allir verða með. Rýnihópur starfar samhliða ísbrjótum og í honum eru tveir frá ísbrjótahópnum, einn aðstandandi , starfsmaður frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar og starfsmaður frá félaginu..

    Stefnt er að því að allir geti fengið tækifæri til að vera með í þessu að hausti 2012. Upplýsingaveita um tilboð verður á heimasíðu Áss styrktarfélgags. Tilboðin verða mis umfangsmikil og er ákveðinn fjöldi/rými í hverju verkefni/vinnu. Gert er ráðfyrir því að hver hafi sína heimastöð. Eftir úrvinnslu vals er gerður verksamningur til allt að níu mánaða. 

    Vinnustadir


    Stjórnborð

    Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

    Flýtileiðir