Fréttir frá Lækjarási
14. desember 2010
Fréttabréf Lækjaráss
Fréttabréf Lækjaráss fyrir desember mánuð er komið út. Þar ber ýmissa grasa, m.a. er viðtal, jólasaga og ýmsar tilkynningar. Fréttabréfið er hægt að nálgast hér í prentvænni útgáfu.
7. desember 2010
Menningavika í Lækjarási
Vikuna 15.-19. nóvember var haldin menningarvika í Lækjarási í annað skipti. Skiptust stofurnar á að koma með menningarlega viðburði. Kenndi þar ýmissa grasa og fengum við kynningu á kaffimenningu, jeppamenningu, íslensku jólasveinunum, tröllum og ýmsir lásu upp ljóð. Var þetta mjög fjölbreytt og skemmtileg vika.
Með því að smella á myndina fáið sjáið þið myndir á prentvænu formi.
11. nóvember 2010
Fjölmiðlahópur Lækjaráss
Hluti af Fjölmiðlahóp Lækjaráss kom í gær og afhenti skrifstofu félagsins eintak af Lækjaráspóstinum. Hér að neðan má sjá mynd af Maríu afhenda Jónínu eintak og með því að smella á meira er einnig hægt að sjá Sverri, Bjarna, Maríu, Jónínu og Þóru. Þökkum kærlega fyrir afhendinguna.
9. nóvember 2010
Lækjaráspósturinn
Pósturinn fyrir október mánuð er kominn út frá Lækjarási, þar sem sagt er frá ýmsu, m.a.:
- Þann 22. október síðastliðin voru 29 ár liðin frá stofnun Lækjaráss.
- Unnið er nú að krafti að setja upp heitan pott í Lækjarási.
- Bíódagar verða haldnir í Lækjarási einu sinni í mánuði.
Lækjaráspósturinn er kominn út og hægt að nálgast hann hér í prentvænu formi.
10. október 2010
Sumar 2010 í Lækjarási
16. júní 2010
Heilsuvika
Vikuna 31. maí til 4. júní var haldin heilsuvika í Bjarkarási og Lækjarási. Heilsuvikan er orðinn fastur liður í starfsemi staðanna og dagskráin orðin nokkuð fastmótuð. Föstu liðirnir eru göngutúrar tvisvar sinnum á dag og matseðillinn er á hollum nótum. Að þessu sinni byrjuðum við á að fá kennslu í að útbúa heilsudrykk sem allir geta gert heima og allir fengu að smakka.
15. júní 2010
Lækjaráspósturinn
Þar segir m.a. frá því að í apríl kom Laufey Gissurardóttir í Lækjarás og hélt námskeið í helstu grunnatriðum skyndihjálpar. Námskeiðið var mjög gagnlegt ogskemmtilegt og þátttakendur lærðu hvernig á að bregðast við og bjarga fólki í neyð. Hægt er að sjá póstinn í heild sinni í pdf formi hér.
18. maí 2010
Saga um tré
Eins og áður hefur komið fram gerði Lækjarás listaverk sem var við opnun á List án landamæra. Auðunn Gestsson samdi ljóð í því tilefni og allir þjónustunotendur komu að undirbúningi og gerð listaverksins með einhverjum hætti.
Með því að smella hér sjáið þið myndir frá undirbúningnum.
Saga um tré Lítið tré stendur við jörðu Regnið bleytir grasið Tréð vex og vex Verður stórt eins og Lækjarás Fuglarnir syngja söngva Höfundur: Auðunn Gestsson
Til að sjá ljóðið með texta og táknum smellið hér.
29. apríl 2010
List án landamæra
Lækjarás tekur þátt í List án landamæra með samstarfsverkefni sem nefnist "Saga um tré" og byggir á ljóði eftir Auðunn Gestsson og segir frá vöxti trjáa sem plantað var á lóð Lækjaráss fljótlega eftir stofnun þess. Flestir þjónustunotendur Lækjaráss komu að gerð þessa verks sem er unnið á eikarparket og myndin mótuð úr mosaík glerflísum. Verkið er til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 29. apríl til 9. maí.
Lækjarás þakkar Agli árnasyni hf. veittan stuðning við gerð verksins.
Á myndinni er Auðunn Gestsson höfundur ljóðsins ásamt listaverkinu.
Hægt er nálgast dagskrána hér á pdf formi.
Opnun List án landamæra verður í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag klukkan 17.





