Starfsemi Lækjaráss
Starfsemin
Lækjarás býður upp á dagþjónustu fyrir fullorðið fólk með þroskahömlun og hefur verið starfrækt í Stjörnugróf 7 síðan 1981. Á Lækjarási er lögð áhersla á fjölbreytta einstaklings- og hópmiðaða starfsemi og haft að leiðarljósi að gera vinnu, afþreyingu og umhverfi aðgengilegt hverjum og einum.
Starfsemin spannar vítt svið og má þar nefna, þroskaþjálfun, verkefnavinnu, klúbbastarfsemi, vettvangsferðir, tölvur og líkamsþjálfun. Mikil áhersla er á óhefðbundin tjáskipti og er unnið markvisst með tákn með tali, Boardmaker, Pictogram og stafrænar myndir.
Á Lækjarási eru 5 stofur sem bjóða uppá mismunandi tilboð :
Dekrið - Þar er boðið uppá fótabað, handsnyrtingu, nudd, heita bakstra og ýmislegt fleira.
Vinnukot - Þar er unnið við að pakka mjólkursýnisflöskum fyrir Sigurplast
Ræktin - Þar eru rafmagnshjól, standbekkir og rofar í boði
Gallerí - Þar er unnið að ýmsu sem tengist skapandi starfi, s.s unnið með þæfða ull, málað, saumað á saumavél og margt fleira.
Setrið - Þar er boðið uppá leikræna tjáningu, minningavinnu, létta morgunleikfimi og margt fleiraÞeir sem nýta sér þjónustu Lækjaráss gefst tækifæri á að fara í þjónustusamtöl 2x á ári þar sem þeir geta rætt líðan sína og valið sér tilboð. Á Lækjarási er lögð áhersla á eftirfarandi gildi:
Gagnkvæm virðing - Að koma fram við aðra eins og þú vilt að það sé komið fram við þig.
Sveigjanleiki - Einstaklingsmiðuð þjónusta krefst sveigjanleika svo hægt sé að mæta síbreytilegum þörfum
Nýbreytni - Framsækinn staður sem fylgist með nýbreytni, staður sem lærir





