Fréttir frá Lyngási
30 ára Starfsafmćli
1. október fagnaði Helga Hjörleifsdóttir félagsliði 30 ára starfsafmæli á Lyngási. Að því tilefni var henni haldin veisla með köku og tilheyrandi. Henni var afhentur blómvöndur og Vinahjartasegul um leið og henni eru veittar þakkir fyrir gott innlegg í starfið.
Gjöf til Lyngáss
Foreldrar Helenu Matthíasardóttur sem lést í mars sl., María Guðmundsdóttir og Matthías Guðmundsson komu færandi hendi og afhentu Lyngási bílinn sinn til eignar en áður hafa þau gefið myndavél, tölvu og prentara. þau eru nú flutt erlendis þar sem þau munu dvelja á næstu árum. Forsvarsmenn og starfsfólk Lyngáss þakkar þeim enn og aftur fyrir góðar og höfðinglegar gjafir um leið og við óskum þeim velfarnaðar á framandi slóðum.
Kćrar ţakkir krakkar!
Systkyni Katrínar Róbertsdóttur, Birta, Arnór og Rakel Dóra, komu hér færandi hendi... þau höfðu haft tombólu í sinni heimabyggð, Mosfellsbæ og gáfu Lyngási afraksturinn, 20.000. krónur!! Viljum við þakka þeim kærlega fyrir frábært framtak og höfðinglega gjöf.
Íris og Beinta María fara í söluferđ
Íris og Beinta María tóku að sér í sumar að selja grænmeti framleitt í Bjarkarási og hér eru þær klyfjaðar á leiðinni út á Æfingastöð SLF..
Sundtími međ Snorra Magnússyni
Snorri Magnússon kom tvivsar í sundtíma yngstu barna á Lyngási og kenndi starfsfólki ný trix og handbrögð.. mikil ánægja og gleði var í þeim sundtímum :)
|





