Fréttir frá Lyngási
Gleđilegt nýtt ár
GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG ÞÖKKUM LIÐIÐ
Jólaskemmtun 2009
Fanney Edda og jólasveinarnir Guðfinnur og Sigurbjörn
Jólaskemmtun var haldin 18. des og komu margir góðir gestir eins og Stúfur og Stekkjastaur, Harpa Arnardóttir og hljómsveit.
Meiri jólastemning 8. des 2009
Afrakstur bökunar og málun á piparkökur.
Jólastemning 8. des 2009
8. des var kátt á hjalla... Jólasveininn kíkti í heimsókn og voru teknar nokkrar myndir við það tækifæri.
730 ţúsund krónur til handa Lyngási
Ríflega 730 þúsund krónur söfnuðust í uppboði sem haldið var í Góða hirðinum, nytjamarkaði Sorpu og líknarfélaga, síðastliðinn föstudag. Féð rennur til Lyngáss og opnar sannarlega marga möguleika til þess að auðga líf þeirra einstaklinga sem nýta sér þjónustu Lyngáss. Styrkurinn verður meðal annars nýttur í útgáfu á samskiptabókum og til ýmissa verkefna sem tengjast listum.
Þökkum við hlutaðeigendum kærlega fyrir stuðninginn.
Jólamarkađur / Jólakort til styrktar Lyngási
Laugardaginn 5. desember verður jólamarkaður frá kl 12 - 17 í Félagsgarði í Kjós. Á boðstólum verður ýmiskonar handverk og matvælaframleiðendur hér í kjósinni verða með margskonar góðgæti til sölu. Hægt er að byrja daginn á því að ná sér í alíslenkst jólatré á skógræktarsvæðinu við Fossá og fá sér svo kakó og vöfflu hjá kvenfélaginu í félagsgarði auk þess að skoða það sem þar er í boði.
Pakki með 8 jólakortum og umslögum kostar 1000 krónur
Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á jólamarkaðinn en vilja engu að síður leggja þessu góða málefni lið geta pantað kort í gegnum tölvupóst og þá bætist við sendingarkostnaður.
Vonumst til að sjá sem flesta á jólamarkaðnum.
Gyða S. Björnsdóttir
Netfang; gyda@sogumidlun.is
Lćkjaráspósturinn er kominn út
Þann 9. október 2009 urðu breytingar í Lækjarási en þá flutti Húsið starfsemi sína í Lækjarás í rýmið þar sem sjúkraþjálfunin var áður. Búið er að taka rýmið í gegn, mála og gera fínt. Ákveðið var að Húsið fengi nýtt nafn og heitir núna Setrið. Til að sjá Lækjaráspóstinn í heild ýtið hér
Dagur íslenskrar tungu
Á mánudaginn næstakomandi 16. nóvember ætlum við að sameinast inni á E stofu og hlusta á þjóðsögur í tilefni dags íslenskrar tungu. Hittumst kl 13:45 þeir sem vilja koma og hlusta
Til að sjá auglýsingu ýta hér
Gjafir frá Hringnum
Í ágúst hafði fulltrúi Kvenfélags Hringsins samband og tilkynnti að Barnaspítalasjóður vildi gefa Lyngási MODOMED æfingahjól, flatskjá og DVD tæki. Kunnum við Hringskonum bestu þakkir fyrir.
Elberg að æfa sig.....
Glimmerdagur í ágúst
Á góðum degi í ágústmánuði - gull og glimmer :)
Ungt fólk ađ störfum.
Öskudagur
Öskudagur rann upp og þá komu í ljós allskyns kynjaverur, drottningar og prinsessur.....





