Fréttir frá Lyngási
Fyrsti tónlistartíminn
Sú nýbreytni í vetur er að auk leikrænnar tjáningar og sunds mun Soffía Huld Friðbjarnardóttir tónlistarkennari í Safamýrarskóla sjá um tónlistartíma fyrir elsta hópinn 20-30 ára. í dag var fyrsti tíminn og ekki annað að sjá en allir hafi notið stundarinnar. Líkt og leikræn tjáning verður tónlistartíminn styrktur frá afrakstri uppboðs hjá Góða hirðinum á síðasta ári.





