Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Formálsorð

Ríkin, sem eiga aðild að samningi þessum,
a) sem minnast meginreglna, sem kunngerðar eru í sáttmála
Sameinuðu þjóðanna, þar sem mannleg reisn og verðleikar og jöfn
og óafsalanleg réttindi allra manna eru viðurkennd sem hornsteinn
frelsis, réttlætis og friðar í heiminum,


b) sem viðurkenna að Sameinuðu þjóðirnar hafa kunngert og
samþykkt, með almennu mannréttindayfirlýsingunni og
alþjóðasamningunum um mannréttindi, að öllum mönnum beri öll
þau réttindi og eigi tilkall til þess frelsis sem þar er greint frá, án
aðgreiningar, í hvaða mynd sem er,


c) sem árétta algildi gervallra mannréttinda og mannfrelsis og að
þau eru ódeilanleg, háð innbyrðis og tengd og nauðsyn þess fyrir
fatlaða að þeim séu tryggð þau réttindi og frelsi að fullu án
mismununar,


d) sem minnast alþjóðasamningsins um efnahagsleg, félagsleg
og menningarleg réttindi, alþjóðasamningsins um borgaraleg og
stjórnmálaleg réttindi, alþjóðasamningsins um afnám alls
kynþáttamisréttis, samningsins um afnám allrar mismununar
gagnvart konum, samningsins gegn pyndingum og annarri
grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu,
samningsins um réttindi barnsins og alþjóðasamningsins um
verndun réttinda allra farandlaunþega og fjölskyldumeðlima þeirra,


e) sem viðurkenna að hugtakið fötlun er breytingum undirorpið
og að rekja má fötlun til samspils milli fatlaðra og viðhorfstengdra
tálma og umhverfishindrana sem koma í veg fyrir fulla og virka
þátttöku þeirra í samfélaginu á jafnréttisgrundvelli,


f) sem viðurkenna þýðingu meginreglna og leiðbeininga á sviði
stefnumörkunar, sem alþjóðlega aðgerðaáætlunin í þágu fatlaðra og
samhæfðu reglurnar um jöfn tækifæri fyrir fatlaða hafa að geyma,
fyrir framgang, mótun og mat á stefnumiðum, fyrirætlunum,
áætlunum og aðgerðum innanlands, innan svæða og á
alþjóðavettvangi í því skyni að jafna enn frekar tækifæri fötluðum
til handa,


g) sem leggja áherslu á mikilvægi samþættingar málefna
fatlaðra sem óaðskiljanlegs hlutar viðeigandi áætlana um sjálfbæra
þróun,


h) sem viðurkenna einnig að mismunun gagnvart sérhverjum
einstaklingi sakir fötlunar misbjóði mannlegri reisn og verðleikum
mannsins,


i) sem viðurkenna enn fremur að fatlaðir eru sundurleitur hópur,


j) sem viðurkenna nauðsyn þess að stuðla að og vernda
mannréttindi allra fatlaðra, einnig þeirra sem þurfa mikinn stuðning,


k) sem hafa af því áhyggjur að þrátt fyrir þá margvíslegu
gerninga og skuldbindingar er áður getur eru fatlaðir eftir sem áður
hindraðir í að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra og standa
frammi fyrir því að mannréttindi þeirra séu brotin alls staðar í
heiminum,


l) sem viðurkenna þýðingu alþjóðlegs samstarfs um að bæta
lífskjör fatlaðra í öllum löndum, einkum þróunarlöndum,


m) sem viðurkenna þarft framlag fatlaðra til almennrar
velsældar og fjölbreytni samfélaga sinna, eins og það er nú og getur
orðið, og að fylgi við að fatlaðir njóti mannréttinda og mannfrelsis
til fulls og séu virkir þátttakendur í samfélaginu muni leiða til
aukinnar tilfinningar þeirra fyrir því að þeir tilheyri samfélaginu og
til umtalsverðrar framþróunar samfélagsins, jafnt á mannlega
sviðinu sem og því félagslega og efnahagslega, og til þess að fátækt
verði útrýmt,


n) sem viðurkenna gildi þess fyrir fatlaða að vera sjálfráðir og
sjálfstæðir, meðal annars að hafa frelsi til að taka eigin ákvarðanir,


o) sem telja að fatlaðir ættu að eiga kost á því að eiga virka aðild
að ákvarðanatöku um stefnumið og áætlanir, m.a. ákvarðanatöku
sem varðar þá með beinum hætti,


p) sem hafa áhyggjur af erfiðum aðstæðum sem fatlaðir, sem
reyna margþætta eða stóraukna mismunun sakir kynþáttar,
litarháttar, kynferðis, tungumáls, trúarbragða, stjórnmálaskoðana
eða annarra skoðana, þjóðlegs, þjóðernislegs eða félagslegs uppruna
eða frumbyggjaættar, eigna, ætternis, aldurs eða annarrar stöðu,
standa frammi fyrir,


q) sem viðurkenna að fatlaðar konur og stúlkur eru oft í meiri
hættu, innan heimilis sem utan, að verða þolendur ofbeldis, meiðsla
eða misþyrminga, hirðuleysis eða vanrækslu, illrar meðferðar eða
misnotkunar í gróðaskyni,


r) sem viðurkenna að fötluð börn ættu að njóta til fulls allra
mannréttinda og mannfrelsis til jafns við önnur börn og minnast
skuldbindinga í þá veru sem ríki, sem eru aðilar að samningnum um
réttindi barnsins, hafa undirgengist,


s) sem leggja áherslu á nauðsyn þess að tekið sé mið af
kynjasjónarmiðum í þeirri viðleitni að stuðla að því að fatlaðir njóti
mannréttinda og mannfrelsis til fulls,


t) sem vilja draga fram þá staðreynd að meirihluti fatlaðra lifir í
fátækt og viðurkenna í því sambandi að knýjandi þörf er á að vinna
gegn þeim neikvæðu áhrifum sem fátækt hefur á fatlaða,


u) sem hafa hugfast að friður og öryggi, reist á fullri virðingu
fyrir tilgangi og meginreglum sáttmála Sameinuðu þjóðanna og því
að gildandi gerningar á sviði mannréttinda séu hafðir í heiðri, er
forsenda þess að fatlaðir njóti fullrar verndar, einkum þegar vopnuð
átök standa yfir og undir erlendri hersetu,


v) sem viðurkenna gildi þess að fötluðum sé tryggt aðgengi að
hinu efnis-, félags-, efnahags- og menningarlega umhverfi, njóti
heilbrigðis og menntunar og aðgengis að upplýsingum og
samskiptamiðlum til þess að þeir megi njóta allra mannréttinda og
mannfrelsis til fulls,


w) sem gera sér ljóst að það er á ábyrgð einstaklingsins sjálfs,
sem hefur skyldum að gegna við aðra einstaklinga og samfélag sitt,
að berjast fyrir framgangi réttinda, sem eru fólgin í
alþjóðaréttarskránni, og því að þau séu virt,


x) sem eru þess fullviss að fjölskyldan er hin eðlilega
undirstöðueining samfélagsins og að samfélaginu og ríkinu beri
skylda til að vernda hana og enn fremur að fötluðum og fjölskyldum
þeirra beri nauðsynleg vernd og aðstoð til þess að fjölskyldum verði
gert kleift að leggja sitt af mörkum til þess að fatlaðir geti notið
réttinda sinna til fulls og jafns við aðra,


y) sem eru þess fullviss að gerð alþjóðasamnings, sem er
heildstæður og heilsteyptur að allri gerð, í því skyni að auka og
vernda réttindi og reisn fatlaðra yrði mikilvægt framlag til þess að
bæta úr óviðunandi félagslegri aðstöðu fatlaðra og myndi stuðla að
framgöngu þeirra sem borgara og þátttöku í stjórnmálum og
efnahags- og menningarlífi til jafns við aðra, bæði í þróunarlöndum
og iðnríkjum,
hafa orðið ásátt um eftirfarandi:


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir