Samningur Sameinuðu þjóðanna
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun er kominn á íslensku. Samningurinn um réttindi fólks með fötlun (CONVENTION ON THE RIGHTS OF PERSONS WITH DISABILITIES) og valfrjáls bókun við samninginn um réttindi fólks með fötlun (OPTIONAL PROTOCOL TO THE CONVENTION ON THE RIGHTS OF PERSONS WITH DISABILITIES) var tekinn til undirritunar þann 30. mars 2007. Í kjölfarið gátu ríkin staðfest samninginn. Ísland undirritaði samninginn þann sama dag. Einnig var valfrjáls bókunin undirrituð, án fyrirvara.