Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

5. desember 2007

Könnun á högum fólks með þroskahömlun 45 ára og eldra

                          

Í tilefni af Evrópuári jafnra tækifæra ákvað félagsmálaráðuneytið að veita styrki til félagasamtaka úr verkefnasjóði til verkefna sem hafa það að markmiði að vinna að almennri og víðtækri vitundar­vakningu í samfélaginu um mismun á grundvelli kyns, öldrunar, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar og trúar.    Rýnihópurinn 3

 

3. október 2007

Ný fræðslunefnd hefur tekið til starfa

Ný fræðslunefnd hefur tekið til starfa hjá Styrktarfélagi vangefinna. Í henni sitja Laufey Gissurardóttir, starfsmannastjóri. Sigríður Kristjánsdóttir yfirþroskaþjálfi í Víðihlíð og Valgerður Unnarsdóttir yfirþroskaþjálfi í Bjarkarási.  Okkur langar að byrja á því að kynna þá dagskrá sem komin er varðandi námskeið, fundi og starfsdaga.

Smellið á sjá nánar hér að neðan til að sjá dagskrá vetrarins

21. september 2007

Fréttir frá ráðstefnu Workability international í Sviþjóð

Þann 10 - 14 september síðastliðinn var haldin ráðstefna um atvinnumál fatlaðra. Að þessu sinni var hún haldin í Stokkhólmi í Svíþjóð. Ráðstefnam var á vegum Workability international.Ráðstefnam var á vegum Workability international, en Samhall, sem eru sænsk atvinnusamtök, sá um allt utanumhald. 

smellt á myndina hér að neðan er hægt að komast á heimasíðu Samhall. Þar er hægt að skoða glærur frá fyrirlestrum sem fluttir voru á ráðstefnunni.

29. ágúst 2007

Erna Einarsdóttir í námsleyfi

Erna Einarsdóttir, starfsmannastjóri verður í námsleyfi næsta árið og mun mun Laufey Gissurardóttir taka við starfi hennar á meðan.

22. ágúst 2007

Nýtt fréttablað frá Lækjarási

Með því að smella hér getur þú nálgast fréttablaðið

19. júní 2007

Grillpartý í Bjarkarási

Föstudaginn 15. júní var grillveisla í Bjarkarási. Eins og undanfarin ár komu Greifarnir og léku fyrir dansi efir matinn.

Grill og Greifar

19. júní 2007

Námsferð starfsfólks Bjarkaráss til Frankfurt

Starfsfólk Bjarkaráss fór í námsferð til Frankfurt dagana 17.-20. maí síðastliðinn

14. júní 2007

fréttir á auðlesnu máli

Reykja-víkur-mara-þon Glitnis

Reykja-víkur-mara-þon Glitnis vakti mikla at-hygli í fyrra. Reykjavíkurmaraþon Glitnis

Þá ákvað bank-inn að fara nýja leið, virkja starfs-fólkið og nýta um leið mara-þon-ið til að leggja góðu mál-efni lið. 

 

sjá nánar

6. júní 2007

Nýliðafræðsla

Styrktarfélagið, Svæðisskrifstofur Reykjavíkur og Reykjaness eru með fræðslu fyrir sumarstarfsfólk dagana  5. og 6.júní  á Grand Hótel. (sjá dagskrá)

 

Hægt er að ná í glærur frá fyrirlestrum hér fyrir neðan:

 

1.  Fjárreiður þjónustunotenda og heimilisrekstur sumarf 0607

2.  fræðsla fyrir sumarstarfsfólk 2006

3.  Hvað felst í að vinna með fötluðum sumarfr 0607

4.  Nýliðafræðsla 2007 ÞÞ

5.  Siðareglur svæðisskrifstofa sumarfr 0607

6.  Stoðþjónusta sumarfr 0607

7.  Sumarstarfsfólk 2007 Sallý

8.  Sumarstarfsmenn 0607 Lone-fiskurinn

 

6. júní 2007

Fréttablað Styrktarfélagsins, EYKTARÁS komið á netið

Nú er hægt að nálgast fréttablað Styrktarfélagsins hér á heimasíðu félagsins.

23. maí 2007

Vel lukkuð námsferð

Dagana 18.- 21. apríl 2007 dvaldi starfsfólk Lyngáss í Cambridge í Bretlandi í þeim tilgangi að kynna sér málefni barna með fötlun þar í landi. Starfsfólkið heimsótti hinar ýmsu stofnanir, þar á meðal listasmiðju, dagvistun, framhaldsskóla og grunnskóla.

 

 

 

 

 

 

 

18. maí 2007

Menntun nemenda með þroskahömlun á Íslandi

Tækifæri og tálmar

Kynning á niðurstöðum rannsóknar R.K.H.Í sem unnin var að beiðni

Landssamtakanna Þroskahjálpar og náði til leikskóla, grunnskóla, og framhaldsskóla

23. maí 2007 kl. 13.00 – 16.00

 í Skriðu Kennaraháskóla Íslands

20. apríl 2007

Hvað viltu gera í sumarfríinu?

Frábært og hæft starfsfólk. Spennandi og skemmtileg dagskrá

Í sumar eru 3 valkostir í boði:

 

1. Vikudvöl í Munaðarnesi 22. - 29. júní

2. Svíþjóð/Kaupmannahöfn 30. júní - 7. júlí / 7. júlí - 14. júlí

3. Ferð til Þýskalands eða Ítalíu um mánaðarmótin júní - júlí.

 

Umsóknarfrestur er til 28. apríl og umsóknum verður svarað fyrir 1. maí

Upplýsingar veitir Guðrún Hallgrímsdóttir , þroskaþjálfi

netfang: gunnahall@gmail.com  

sími:  843 0777

12. apríl 2007

Styrktarfélagið fær styrk úr Menningarsjóði Landsbankans

Þann 11. apríl síðastliðinn veitti Menningarsjóður Landsbankans Styrktarfélaginu styrk að upphæð 1000.000 kr. Stjórn Menningarsjóðsins ákvað að tileinka úthlutun ársins þeim 75 málefnum og félögum sem eru í þjónustunni "Leggðu góðu málefni lið" í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans.

 

2. apríl 2007

Nýir samningar við Eflingu

Þann 22. mars síðastliðinn var haldinn kynningarfundur á kjarasamningi við Eflingu sem gildir fyrir fatlaða starfsmenn.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

23. mars 2007

Tækifæri fyrir alla

Þróunarverkefni Styrktarfélags vangefinna um breyttan lífsstíl hjá einstaklingum með þroskahömlun tekur á einu helsta heilsufarsvandamáli í Evrópu, offitu.



Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir