Fréttir
19. nóvember 2008
Ný vörulína frá Ási- vinnustofu
| Hafin er framleiðsla á vönduðum handklæðum með ísaumuðum myndum sem nokkrir starfsmenn Áss - vinnustofu teiknuðu. Hönnuður þessarar framleiðslulínu er ungur frakki að nafni Ulysse Neau, en handklæðin voru hluti af útskriftarverkefni hans úr Listaháskóla Íslands.
Hægt er að fá nánari upplýsingar á Ási - vinnustofu og einnig á vefsíðu verkefnisins: www.we-towels.com |
19. nóvember 2008
Karlaklúbburinn fer í heimsókn
Karlakúbbur Bjarkaráss og Lækjaráss fóru um daginn í heimsókn til Bílamarkaðarins þar sem þeim var boðið að skoða nokkra eðalvagna
6. nóvember 2008
Samstarf Bjarkaráss við LÍ og HR.
3. nóvember 2008
Átaksnámskeiðið Breyttur lífsstíl hófst 20. október 2008.
|
| Námskeiðið er á vegum World Class og Áss styrktarfélags. World Class útvegar aðstöðuna og þjálfarann Geir Gunnar Markússon. |
23. október 2008
Opið hús - afmæli
21. október 2008
Happdrætti Áss styrktarfélags 2008
![]() |
|
Sala happdrættismiða Áss styrktarfélags fyrir árið 2008 er hafin!
|
29. september 2008
Ráðstefnan um notendastýrða þjónustu
| Ráðstefnan um notendastýrða þjónustu var valdin laugardaginn 27. september á Grand hóteli í Reykjavík. Var það almenn skoðun að vel hafi tekist til. |
![]() |
23. ágúst 2008
Myndir frá sumardvölum 2008
|
Með því að smella á eftirfarandi slóð er hægt að nálgast myndir frá sumardvölum 2008 |
![]() |
20. ágúst 2008
Reykjavíkur maraþon Glitnis
![]() |
|
Ás styrktarfélag þakkar öllum þeim sem hlupu í nafni félagsins og einnig þeim sem ákváðu að heita á hlauparana. Ykkar stuðningur skiptir miklu máli. Smellið á meira hér að neðan til að sjá nokkrar myndir frá hlaupinu. |
15. ágúst 2008
Ráðstefna um notendastýrða þjónustu
Þann 27. september næst komandi verður haldin ráðstefna á Grand hóteli um notendastýrða þjónustu. Við kvetjum sem flesta til að mæta, enda dagskráin vönduð og málefnið þarft. Nánari upplýsingar um dagskránna finnur þú hér
20. júní 2008
Sumarmarkaður Áss 14. júní
| Sumarmarkaður Áss styrktarfélags var haldinn í grófinni 14. júní síðastliðinn. Dagurinn var vel heppnaður, veðrið yndislegt og voru margir sem lögðu leið sína á markaðinn. |
4. júní 2008
Ný heimasíða!
Nú hefur ný heimasíða félagsins litið dagsins ljós, enda óhjákæmileg aðgerð í kjölfar nafnabreytinga á félaginu. Töluverð vinna hefur verið lögð í þessa síðu og stuðlað að því að gera hana eins aðgengilega og einfalda og framast er unnt.
7. maí 2008
Lyklar afhentir íbúum Langagerðis
| Formleg afhending lykla til íbúa Langagerðis 122 fór fram miðvikudaginn 30. apríl síðastliðinn. Þar var margt um manninn og almennt talið að um glæsilega byggingu sé að ræða sem stenst nýjustu kröfur um gæði húsnæðis fyrir fólk með fötlun. |
| |
6. maí 2008
50 ára afmæli félagsins fagnað
var haldin í Gullhömrum þann 20. apríl síðastliðinn. Á sjöunda hundrað mættu á þennan merka viðburð og greinilegt að félagið á sér marga velunnara og trygga félagsmenn.
Gísli Einarsson sá um veislustjórn. Ýmis skemmtiatriði voru á dagskrá. Má þar helst nefna söngflokkinn Blikandi stjörnur og leikhópinn Perluna. Hjörleifur Valsson, fiðluleikari, lék undir borðum og Greifarnir spiluðu fyrir dansi.










