Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

19. nóvember 2008

Ný vörulína frá Ási- vinnustofu

Hafin er framleiðsla á vönduðum handklæðum með ísaumuðum myndum sem nokkrir starfsmenn Áss - vinnustofu teiknuðu. Hönnuður þessarar framleiðslulínu er ungur frakki að nafni Ulysse Neau, en handklæðin voru hluti af útskriftarverkefni hans úr Listaháskóla Íslands. 

Hægt er að fá nánari upplýsingar á Ási - vinnustofu og einnig á vefsíðu verkefnisins:

www.we-towels.com
Hugrún

19. nóvember 2008

Karlaklúbburinn fer í heimsókn

Karlakúbbur Bjarkaráss og Lækjaráss fóru um daginn í heimsókn til Bílamarkaðarins þar sem þeim var boðið að skoða nokkra eðalvagna

Hér má sjá myndir frá heimsókninni

6. nóvember 2008

Samstarf Bjarkaráss við LÍ og HR.

Hópur ungmenna sem stunda nám við Listaháskólann og Háskólann í Reykjavík hlutu 1. verðlaun í hönnunar og markaðsnámi. Um er að ræða framleiðslu á leirpottum með mold og mismunandi kryddjurtafræum í sem eingöngu þarf að vökva og bíða svo uppskerunnar.  
Stærri mynd 

3. nóvember 2008

Átaksnámskeiðið Breyttur lífsstíl hófst 20. október 2008.

Breyttur lífstíll 2008 
Námskeiðið er á vegum World Class og Áss styrktarfélags. World Class útvegar aðstöðuna og þjálfarann Geir Gunnar Markússon. 

 



Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir