Fréttir
30. desember 2009
Nýárskveðja
Ás styrktarfélag óskar öllum
gleðilegs árs
með þökk fyrir það gamla
30. desember 2009
Happdrætti félagsins
29. desember 2009
Viljinn í verki er komin í bókabúðir
Höfundur bókarinnar er Hilma Gunnarsdóttir sagnfræðingur og listaverk á kápusíðu er eftir Guðrúnu Bergsdóttur.Prentsmiðjan Oddi ehf sá um hönnun og prentvinnslu.
Bókin er til sölu í flestum verslunum Pennans Eymundssonar víða um land.
22. desember 2009
Jólakveðja
Ás styrktarfélag óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum samstarfið, hlýhuginn og stuðninginn á árinu sem er að líða.
9. desember 2009
730 þúsund krónur til handa Lyngási
Ríflega 730 þúsund krónur söfnuðust í uppboði sem haldið var í Góða hirðinum, nytjamarkaði Sorpu og líknarfélaga, síðastliðinn föstudag. Féð rennur til Lyngáss og opnar sannarlega marga möguleika til þess að auðga líf þeirra einstaklinga sem nýta sér þjónustu Lyngáss. Styrkurinn verður meðal annars nýttur í útgáfu á samskiptabókum og til ýmissa verkefna sem tengjast listum.
Þökkum við hlutaðeigendum kærlega fyrir stuðninginn.
7. desember 2009
Frá félagsfundi Áss styrktarfélags
Fundurinn var haldinn á alþjóðadegi fatlaðra í samvinnu við Landssamtökin Þroskahjálp og hófst með morgunverði kl.8.30. Hilma Gunanrsdóttir, höfundur bókarinnar, Viljinn í verki, las stuttan kafla til kynningar, en bókin er saga Styrktarfélags vangefinna til 50 ára.
Einnig voru múrbrjótar Þroskahjálpar afhentir en það voru Norðlingaskóli, Mjólkursamsalan á Suðurlandi og List án landamæra að þessu sinni. Myndir er hægt að skoða hér að neðan líkt og fundargerð.
30. nóvember 2009
Jólamarkaður / Jólakort til styrktar Lyngási
Laugardaginn 5. desember verður jólamarkaður frá kl 12 - 17 í Félagsgarði í Kjós. Á boðstólum verður ýmiskonar handverk og matvælaframleiðendur hér í kjósinni verða með margskonar góðgæti til sölu. Hægt er að byrja daginn á því að ná sér í alíslenkst jólatré á skógræktarsvæðinu við Fossá og fá sér svo kakó og vöfflu hjá kvenfélaginu í félagsgarði auk þess að skoða það sem þar er í boði.
Pakki með 8 jólakortum og umslögum kostar 1000 krónur
Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á jólamarkaðinn en vilja engu að síður leggja þessu góða málefni lið geta pantað kort í gegnum tölvupóst og þá bætist við sendingarkostnaður.
Vonumst til að sjá sem flesta á jólamarkaðnum.
Gyða S. Björnsdóttir
Netfang; gyda@sogumidlun.is
30. nóvember 2009
Nýtt kennsluefni komið í sölu
Verum örugg er kennsluefni sem sett er upp í námskeiðsformi og ætlað fóki með þroskahömlun 18 ára og eldra. Efnistök byggjast í fyrsta lagi á sjálfsstyrkingu, í öðru lagi á að læra að greina kynferðislega misnotkun og í þriðja lagi hvað sé hægt að gera til þess að tryggja öryggi sitt sem best.
Kennsluefnið er unnið í samstarfi við Landssamtökin Þroskahjálp og Fjölmennt - símenntunarmiðstöð fyrir fatlað fólk.
30. nóvember 2009
Morgunverðarfundur á alþjóðadegi fatlaðra
Fimmtudaginn 3. desember n.k., á alþjóðadegi fatlaðra, boða Ás styrktarfélag og Landssamtökin Þroskahjálp til morgunverðarfundar.
Ás styrktarfélag mun þá fagna útgáfu bókar um 50 ára sögu Styrktarfélags vangefinna sem nefnist "Viljinn í verki".
Einnig mun Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra, afhenda "múrbrjóta" Landssamtakanna Þroskahjálpar í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf í þágu fatlaðs fólks.
Fundurinn verður haldinn á Grand Hóteli Reykjavík (Hvanmmi) og hefst kl. 8:30 með morgunverðarhlaðborði.
30. nóvember 2009
Ás vinnustofa - Ísland í dag
Þann 26.nóvember síðastliðinn var fjallað um starfsemi Áss vinnustofu í Ísland í dag á Stöð 2. Umfjöllunin vakti mikil og góð viðbrögð. Við hér í Ási vinnustofu höfum orðið var við mikinn áhuga á starfi okkar eftir þennan þátt og hefur verið mikið hringt í okkur og spurt um framleiðsluvörur okkar. Fyrir þá sem misstu af þættinum er hægt að sjá hann hér.
29. nóvember 2009
Jólamarkaðurinn í Bjarkarási
Laugardaginn 28. nóvember var hinn árlegi jólamarkaður í Bjarkarási. Þegar opnað var kl. 13 hafði þegar safnast nokkur mannfjöldi utan við dyrnar og má segja að stöðugur straumur fólks hafi verið fram eftir degi. Að venju hafði fólk úr mörgu að velja og gerðu flestir góð kaup til jólanna. Frá Smiðjunni í Bjarkarási var mikið úrval muna úr gleri, tré, leir og fleiru. Ýmsar nýjungar mátti sjá í framleiðslunni eins og kerti af ýmsum stærðum og gerðum ásamt glerdiskum, sérhönnuðum fyrir aðventuna. Ás vinnustofa var með tuskur og handklæði til sölu ásamt nýju barnasloppunum vinsælu. Þá voru starfsmannafélög Bjarkaráss, Lækjaráss og Áss vinnustofu sölubása með ýmiskonar varningi.
sjá myndir hér að neðan
Þreyttir viðskiptavinir gátu svo hvílt sig og gætt sér á smákökum og heitu súkkulaði að innkaupum loknum.
Það er mikils virði að finna hve mikinn áhuga fólk hefur á skapandi starfi og framleiðslu staðanna og kunnum við þeim sem litu inn þennan dag bestu þakkir fyrir
22. nóvember 2009
Frá menningarviku í Lækjarási
Menningarvika var í Lækjarási vikuna 16. - 20 nóvember og var fyrsti dagurinn dagur íslenskrar tungu. Í vikunni skiptust stofurnar á að vera með menningarlegar upákomur. Kenndi þar ýmissa grasa eins og ljóðaupplestur, menningabingó, fróðleikur um íslenska hrafninn og Jónas Hallgrímsson, flutningur á frumsömdum ljóðum og fleira.
Skemmtu allir sér vel og verður menningarvika örugglega fastur liður í starfi Lækjaráss hér eftir.
Hér fyrir neðan er eitt af frömsömdum ljóðum sem Auðunn Gestsson flutti í menningarvikunni.
Litli fuglinn
gengur um sandinn,
öldurnar leika milli steina.
Litli fuglinn
stingur gogginum í sandinn,
tínir ánamaðka
í rauðan gogginn.
Þetta er tjaldurinn.
17. nóvember 2009
Lækjaráspósturinn er kominn út
Þann 9. október 2009 urðu breytingar í Lækjarási en þá flutti Húsið starfsemi sína í Lækjarás í rýmið þar sem sjúkraþjálfunin var áður. Búið er að taka rýmið í gegn, mála og gera fínt. Ákveðið var að Húsið fengi nýtt nafn og heitir núna Setrið. Til að sjá Lækjaráspóstinn í heild ýtið hér
16. nóvember 2009
Dagur íslenskrar tungu
Á mánudaginn næstakomandi 16. nóvember ætlum við að sameinast inni á E stofu og hlusta á þjóðsögur í tilefni dags íslenskrar tungu. Hittumst kl 13:45 þeir sem vilja koma og hlusta
Til að sjá auglýsingu ýta hér
13. nóvember 2009
Breyttur lífsstíll - haustnámskeiði lokið
Námskeiði í Breyttum lífsstíl lauk í dag eftir 8 vikna æfingar. Í dag fengu þátttakendur viðurkenningarskjöl og niðurstöður mælinga á árangri. Allir voru ánægðir og sáttir með tímabilið. Markmið hvers og eins voru mismunandi þar sem ekki var eingöngu verið að horfa í kílóatölu. Enda er margt annað sem vinnst með hreyfingu en þyngdartap. Svefn verður betri, lund léttari og svo framvegis.
Næsta námskeið hefst 18. janúar 2010 og er skráning þegar hafin.
2. nóvember 2009
Nýr bæklingur um Lækjarás
Húsið fluttist í Lækjarás nú á dögunum og af því tilefni setti Lækjarás fram nýjan bækling um daglegt skipulag, innra starf, hlestu boðskiptaleiðir og fleira. Hægt er að sjá hann hér á pdf skjali. En einnig er hægt að sjá hann ásamt bæklingi á ensku í flipanum Dagþjónusta / Vinna og velja þar Lækjarás.
21. október 2009
Vörn gegn einelti hjá Ási styrktarfélagi
Ás styrktarfélag hefur sett upp áætlun til varnar því að einelti eigi sér stað á vinnustöðum innan féalgsins. Það er til marks um það að einelti verður ekki liðið og notast verður við fyrirfram ákveðna ferla til að taka á eineltismálum sem geta komið upp. Til að fræðast meira um áætlunina er hægt að skoða hana í formi pdf skjals hér.
21. október 2009
Vegna Inflúensu A(H1N1)v
Ás styrktarfélag útbjó bækling vegna þeirra inflúensu sem er í gangi þessa dagana. Bæklingurinn er ætlaður öllu starfsfólki félagsins og var bæklingurinn afhentur dagana 12. - 14. október síðast liðinn. Einnig er hægt að nálgast bæklinginn hér
Einnig viljum við vekja athygli á upplýsingum frá Landlækni um viðbragðsáætlun almannavarna vegna inflúensu A(H1N1)v sem sjá má hér
19. október 2009
Bólusetning vegna inflúensu A(H1N1)v
Bólusetning starfsfólks í búsetu hófst 16. október síðast liðinn. Í samráði við heilsugæsluna var tekin sú ákvörðun að bólusetja einnig starfsmenn í dagþjónustu til að reyna að koma í veg fyrir smit frá starfsmönnum til þeirra þjónustuþega sem eru með skilgreinda undirliggjandi sjúkdóma.
Bólusetning þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma hefst þann 2. nóvember næstkomandi en bókun hefst fyrir þá tíma þann 22. október.
16. október 2009
Bleikur dagur 16.október 2009
Í dag var haldinn bleikur dagur í Ási vinnustofu og skapaðist góð stemming hjá öllum. Margir mættu í sínu fínast bleika dress og skemmtu sér vel. Spilað var bingó og auðvitað voru bleikir vinningar. Einnig var boðið uppá bleikt meðlæti í kaffinu og eitthvað var um smá bleikt í hádegismatnum (sem vakti mismikla lukku).
30. september 2009
Sjáðu sæta naflann minn
Sjáðu sæta naflann minn
Kynhegðun unglinga og viðbrögð samfélagsins
Föstudaginn 2. október 2009
Engjavegur 6 v/hliðina á Laugardalshöll
22. september 2009
Námskeið í Breyttum lífsstíl
Breyttur lífsstíl hófst í gær og stendur eins og áður í 8 vikur. Tímarnir verða á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá klukkan 14 - 15. Alls eru 10 þátttakendur nú í haust og mættu allir galvaskir í gær þar sem Sigríður Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi og Geir Gunnar Markússon þjálfari tóku á móti.
4. september 2009
Líf og list án landamæra
Sýnileiki, réttindi og þátttaka
NORRÆN RÁÐSTEFNA
28. september 2009

Ráðstefnan er haldin á vegum Listar án landamæra, sem er árlegur viðburður þar sem lögð er áhersla á samvinnu fólks með fötlun og almennings í gegnum listir og menningarstarf, í þeim tilgangi að efla vitund og skilning á milli einstaklinga sem búa að ólíkri getu til athafna, til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
17. ágúst 2009
Fjölskyldudagar hjá Lyngás
Komið sæl
Þann 20. Ágúst kl. 16-18 verður okkar árlegi fjölskyldudagur.
Við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Með kveðju
Starfsfólk Lyngáss
14. ágúst 2009
Sumarmarkaður Áss styrktarfélags
Fimmtudaginn 27. ágúst
milli 14(2) og 18 (6) verður slegið til uppskeruhátíðar og útimarkaðs í Grófinni við Stjörnugróf 7 - 9.
Ýmiss varningur verður til sölu sem framleiddur er á dagþjónustustöðum Áss styrktarfélags:
2. júlí 2009
Kreppa ógnar atvinnu fatlaðra einstaklinga
Þátttakendur árlegar ráðstefnu Workability Europe, evrópusamtaka þjónustufyrirtækja og vinnuveitenda fatlaðra einstaklinga, létu í dag ljós áhyggjur sínar um áhrif efnahagskreppurnar á atvinnuhorfur fatlaðra einstaklinga.
Á ráðstefnunni sem fram fór í Búkarest dagana 26.-29. maí síðastliðinn greindu meðlimir Workability Europe frá allt að 30% atvinnumissi sem og töluverðu tekjutapi. Þetta á sérstaklega við um ástandið í iðnaði. Hugsanlegt er að afleiðingar kreppunnar yrðu til þess að spilla þeim framförum sem náðst hafa undanfarin ár, jafnvel áratugi, í atvinnumálum fatlaðra.
2. júlí 2009
ÁRLEG RÁÐSTEFNA WORKABILITY EUROPE
Dagana 25.-29. maí 2009, héldu Motivation Romania og Shaw Trust ásamt Workability Europe árlega ráðstefnu Workability Europe um „Fjárhagslegar og efnahagslegar áskoranir: 2009 og áfram" í Búkarest.
Aðstandendur ráðstefnunnar eru þakklátir fyrir stuðning rúmenska ráðuneytis málefna fatlaðra og vilja einnig þakka það mikilsverða hlutverk sem þátttakendur og ræðumenn gegndu.
30. júní 2009
Ungt fólk að störfum.
25. júní 2009
Grill og Greifar
12. júní 2009
Heilsuvika í Lækjarási og Bjarkarási
8. júní 2009
Grow Me kryddjurtirnar

Eins og við sögðum frá hér á síðunni í nóvember síðast liðnum þá vann hópur ungmenna úr Listaháskólanum og Háskólanum í Reykjavík verkefni í samstarfi við Bjarkarás. Þau hlutu 1. verðlaun í hönnunar- og markaðsnámi sínu fyrir verkefnið. Um er að ræða leirpotta
25. maí 2009
Lækjaráspósturinn
Lækjaráspósturinn fyrir mai 2009 er komin út. Hægt er að nálgast hann HÉR
25. maí 2009
Bjarkarás skoðar Boston
Dagana 22. - 26. apríl lögðu leiðbeinendur í Bjarkarási land undir fót og héldu til Boston, Ma í Bandaríkjunum. Þeir heimsóttu vinnustaði fólks með þroskahömlun í nágrenni Boston, skoðuðu borgina og kynntu sér lítillega verslun á svæðinu.
5. maí 2009
Starfsdagur á Lækjarási
Starfsdagur var í Lækjarási 17.apríl síðastliðinn. Fyrir hádegi voru Erna Einarsdóttir og Laufey Gissurardóttir með öldrunarfræðslu sem var mjög áhugaverð. Þær ræddu um heilabilun bæði almennt og hjá fólki með Down's.
7. apríl 2009
Starfsdagar í Bjarkarási
22. - 26. apríl 2009
Leiðbeinendur í Bjarkarási ætla að bregða sér af landi brott á starfsdögum í apríl. Ferðinni er heitið til Boston, USA og hefur hópurinn safnað fyrir ferðinni síðustu tvö ár með ýmsu móti eins og mörg ykkar kannast við. Haldnir voru kökubasarar og bingó, seldar sultur og ostabakkar svo eitthvað sé nefnt. Einnig fengust rausnarlegir styrkir frá Bakkavör og Hlutverki til fararinnar. Samgöngur til Bandaríkjanna eru með þeim hætti að loka þarf Bjarkarási á hádegi miðvikudaginn 22. apríl en starfsemin hefst aftur mánudaginn 27. apríl.
3. apríl 2009
Starfsdagur í Lækjarási
Föstudaginn 17.apríl verður starfsdagur í Lækjarási og Húsinu.
Fyrir hádegi ætla Erna Einarsdóttir starfsmannastjóri og Laufey Gissurardóttir ráðgjafaþroskaþjálfi að vera með öldrunarfræðslu.
2. apríl 2009
Skyndihjálparnámskeið

Á þessu ári hafa verið haldin þrjú grunnnámskeið í skyndihjálp fyrir starfsmenn Bjarkaráss og Áss vinnustofu, sem ekki geta nýtt sér almenn námskeið.
2. apríl 2009
Sumarlokanir
Í sumar verða lokanir á allri dagþjónustu hjá okkar. Hvorki Ás vinnustofa, né Lyngás hafa áður haft lokað yfir sumartímann.
Klikkið á hér fyrir neðan og sjáið nánari upplýsigar um sumarlokanir.
1. apríl 2009
Nýtt!!
26. mars 2009
Samningur við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
24. mars 2009
Aðalfundur Áss styrktarfélags
Aðalfundur Áss styrktarfélags var að þessu sinni haldinn í Bjarkarási þann 17. mars og hófst kl. 20:00. Um 80 manns sóttu fundinn. Dagstofnanir félagsins sáu um glæsilegar veitingar í boði félagsins.
20. mars 2009
Námskeið í Breyttum lífsstíl
Næsta námskeið í Breyttum lífsstíl hefst 20. apríl næstkomandi. Námskeiðið er hefðbundið 8 vikna átaksnámskeið sem er aðlagað að fólki með þroskahömlun. Þjálfari frá World Class er Geir Gunnar Markússon og þroskaþjálfi frá Ási styrktarfélagi er Sigríður Kristjánsdóttir.
13. mars 2009
Styrkur til félagsins
6. mars 2009
Sumardvöl 2009
Í sumar býður Ás styrktarfélag upp á sumardvöl á Suðurlandi. Við höfum fengið aðstöðu í splunkunýju húsnæði Bergmáls, Bergheimum sem er í landi Sólheima í Grímsnesi.
4. mars 2009
Námskeið - Að vera öruggur.
Ás styrktarfélag, Fjölmennt og Landsamtök Þroskahjálpar bjóða uppá spennandi námskeið, fyrir 20 ára og eldri, "Að vera öruggur".
3. mars 2009
Aðalfundur
Venjuleg aðalfundarstörf.
29. janúar 2009
Nýtt átaksnámskeiðið í Breyttum lífsstíl
|
Nýtt átaksnámskeiðið í Breyttum lífsstíl hófst 12. Janúar 2009. Námskeiðið er á vegum World Class og Áss styrktarfélags. World Class útvegar aðstöðuna og þjálfarann Geir Gunnar Markússon. |
8. janúar 2009
HAPPDRÆTTI ÁSS STYRKTARFÉLAGS 2008
Vinningsnúmer
HAPPDRÆTTI ÁSS STYRKTARFÉLAGS 2008
1. vinningur: VW Jetta að andvirði kr. 2.790.000.
kom á miða 14808
2.-10. vinningur: Húsbúnaðarvinningar að verðmæti
kr. 240.000. - hver vinningur
893 7278 9617 11203 12062 13913 15979 16108
16607 17810
Vinningar eru skattfrjálsir og skal vitjað innan árs.
Félagið óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kærlega veittan stuðning.



Námskeiðið varir í 8 vikur eins og önnur hefðbundin átaksnámskeið hjá World Class.




