Fréttir
30. desember 2009
Nýárskveðja
Ás styrktarfélag óskar öllum
gleðilegs árs
með þökk fyrir það gamla
30. desember 2009
Happdrætti félagsins
29. desember 2009
Viljinn í verki er komin í bókabúðir
Höfundur bókarinnar er Hilma Gunnarsdóttir sagnfræðingur og listaverk á kápusíðu er eftir Guðrúnu Bergsdóttur.Prentsmiðjan Oddi ehf sá um hönnun og prentvinnslu.
Bókin er til sölu í flestum verslunum Pennans Eymundssonar víða um land.
22. desember 2009
Jólakveðja
Ás styrktarfélag óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum samstarfið, hlýhuginn og stuðninginn á árinu sem er að líða.
9. desember 2009
730 þúsund krónur til handa Lyngási
Ríflega 730 þúsund krónur söfnuðust í uppboði sem haldið var í Góða hirðinum, nytjamarkaði Sorpu og líknarfélaga, síðastliðinn föstudag. Féð rennur til Lyngáss og opnar sannarlega marga möguleika til þess að auðga líf þeirra einstaklinga sem nýta sér þjónustu Lyngáss. Styrkurinn verður meðal annars nýttur í útgáfu á samskiptabókum og til ýmissa verkefna sem tengjast listum.
Þökkum við hlutaðeigendum kærlega fyrir stuðninginn.
7. desember 2009
Frá félagsfundi Áss styrktarfélags
Fundurinn var haldinn á alþjóðadegi fatlaðra í samvinnu við Landssamtökin Þroskahjálp og hófst með morgunverði kl.8.30. Hilma Gunanrsdóttir, höfundur bókarinnar, Viljinn í verki, las stuttan kafla til kynningar, en bókin er saga Styrktarfélags vangefinna til 50 ára.
Einnig voru múrbrjótar Þroskahjálpar afhentir en það voru Norðlingaskóli, Mjólkursamsalan á Suðurlandi og List án landamæra að þessu sinni. Myndir er hægt að skoða hér að neðan líkt og fundargerð.






