Fréttir
6. september 2010
Stuđningur frá Lionsklúbbnum Frey
1. september 2010
Skráningu í SIS mat í búsetu lokiđ
Um þessar mundir fer fram mat á stuðningsþörf allra einstaklinga á landinu sem eru í búsetuþjónustu fyrir fatlaða. Stuðningsþörfin er metin með bandarísku mati, Supports Intensity Scale (Mat á stuðningsþörf eða SIS mat), sem jafnframt er verið að staðla fyrir íslenskar aðstæður.
Í Reykjavík nær matið til yfir 400 einstaklinga sem njóta búsetuþjónustu hjá þremur rekstraraðilum, SSR, Ási styrktarfélagi og Reykjavíkurborg. Skráningu í SIS er lokið hjá Ási styrktarfélagi
25. ágúst 2010
Auđskilinn texti – kennslurit um gerđ auđskilins texta
Auðskilinn texti – kennslurit um gerð auðskilins texta er aðgengilegt hefti um, hvernig best er að setja upp texta á auðskiljanlegan hátt. Ýmsar tilgátur hafa verið í gangi um hvaða aðferðir skili bestum árangri og eru skilaboðin um aðferðirnar stundum misvísandi.
Í þessu hefti er gerð grein fyrir aðferð sem hefur verið margreynd með rannsóknum frá stofnunum og félagasamtökum í Bretlandi , Noregi og víðar.
Efni þessa heftis gagnast öllum vel sem eru að útbúa kennslu- og annað fræðsluefni ætlað fólki með þroskahömlun á öllum aldri og þeim sem eiga í erfiðleikum með að lesa og skilja flókinn texta.Sigurður Sigurðsson þroskaþjálfi tók efnið saman fyrir Ás styrktarfélag.Heftið er samtals 37 blaðsíður og kostar kr. 1800
Pantanir sendist til: aslaug@styrktarfelag.is
10. ágúst 2010
Sumarmarkađur Áss styrktarfélags
27. júlí 2010
Lyngás - Árbćjarsafn og verslunarferđ
Tómas, Halli Bjössi, Klara, Kristbjörg,
Ragna Sif og Sigrún í Árbæjarsafninu
9. júlí 2010
Kveđja frá Lyngási
Kveðja frá öllum á Lyngási
opnum aftur 19. júlí :)
2. júlí 2010
Ferđ í Húsdýragarđinn
Halli Bjössi og Adam Siggi Örn, Bjössi og Elberg
Strákarnir á D-stofu fóru í Húsdýragarðinn í góða veðrinu
2. júlí 2010
Blómabarn
Helena afmælisbarn að skoða blóm en hún varð 5 ára þennan dag
16. júní 2010
Heilsuvika
Vikuna 31. maí til 4. júní var haldin heilsuvika í Bjarkarási og Lækjarási. Heilsuvikan er orðinn fastur liður í starfsemi staðanna og dagskráin orðin nokkuð fastmótuð. Föstu liðirnir eru göngutúrar tvisvar sinnum á dag og matseðillinn er á hollum nótum. Að þessu sinni byrjuðum við á að fá kennslu í að útbúa heilsudrykk sem allir geta gert heima og allir fengu að smakka.
15. júní 2010
Sumarlokanir
Skrifstofan: 19. júlí til 6. ágúst
Lækjarás: 5. júlí til 23. júlí
Bjarkarás: 28. júní til 23. júlí
Lyngás: 12. til 16. júlí
Ás vinnustofa: 19. júlí til 14. ágúst
15. júní 2010
Lćkjaráspósturinn
Þar segir m.a. frá því að í apríl kom Laufey Gissurardóttir í Lækjarás og hélt námskeið í helstu grunnatriðum skyndihjálpar. Námskeiðið var mjög gagnlegt ogskemmtilegt og þátttakendur lærðu hvernig á að bregðast við og bjarga fólki í neyð. Hægt er að sjá póstinn í heild sinni í pdf formi hér.
2. júní 2010
Mat á stuđningsţörf (SIS): Lagt fyrir hjá Ási styrktarfélagi í júlí og ágúst 2010
1. júní 2010
Gjöf úr Áshildarsjóđi
Áshildarsjóður var stofnaður af foreldrum Áshildar Harðardóttur en hún var til fjölda ára í þjónustu hjá Styrktarfélaginu, m.a. í búsetu á sambýli og dagvíst í Lækjarási. Upprunalega var sjóðurinn aðalega ætlaður til að bæta lífsgæði og aðstæður Áshildar. En þar sem megintilgangi sjóðsins lauk við fráfall Áshildar þann 22. júní 2008 hefur hann verið lagður niður og eigum hans ráðstafað til Áss styrktarfélags í samræmi við skipulagsskrá sjóðsins. Eignum sjóðsins kr. 15.740.970,- verður varið til kaupa og uppsetningar sundpotts (cross trainer) í Lækjarási og byggingar yfir hann.
Ás styrktarfélag þakkar stjórn sjóðsins, þeim Snæbirni Ásgeirssyni, Magnúsi Kristinssyni og Hafliða Hjartarssyni ánægjuleg samskipti á liðnum árum.
28. maí 2010
Ljós í myrkri
18. maí 2010
Saga um tré
Eins og áður hefur komið fram gerði Lækjarás listaverk sem var við opnun á List án landamæra. Auðunn Gestsson samdi ljóð í því tilefni og allir þjónustunotendur komu að undirbúningi og gerð listaverksins með einhverjum hætti.
Með því að smella hér sjáið þið myndir frá undirbúningnum.
Saga um tré Lítið tré stendur við jörðu Regnið bleytir grasið Tréð vex og vex Verður stórt eins og Lækjarás Fuglarnir syngja söngva Höfundur: Auðunn Gestsson
Til að sjá ljóðið með texta og táknum smellið hér.
10. maí 2010
Stofnun ársins 2010 - Ás styrktarfélag í 7. sćti
Könnunin Stofnun ársins er samvinnuverkefni SFR og VR. Þátttakendur voru spurðir út´i vinnutegnda þætti eins og trúverðugleika stjórnenda, sjálfstæði í starfi, vinnuálag, vinnuskilyrði, álag og kröfur, sveigjanleika í starfi og fleira. Könnunin er mikilvægt framlag til vinnumarkaðsrannsókna á Íslandi, enda sú stærsta sinnar tegundar.
3. maí 2010
Gjörningur Gjólu og Meistaranna
Opnunarhátíð List án Landamæra var á fimmtudaginn 29. apríl sl. þar sem Gjóla og Meistararnir framkvæmdu Gjörninginn "Fjaðrafok í logni".
29. apríl 2010
List án landamćra
Lækjarás tekur þátt í List án landamæra með samstarfsverkefni sem nefnist "Saga um tré" og byggir á ljóði eftir Auðunn Gestsson og segir frá vöxti trjáa sem plantað var á lóð Lækjaráss fljótlega eftir stofnun þess. Flestir þjónustunotendur Lækjaráss komu að gerð þessa verks sem er unnið á eikarparket og myndin mótuð úr mosaík glerflísum. Verkið er til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 29. apríl til 9. maí.
Lækjarás þakkar Agli árnasyni hf. veittan stuðning við gerð verksins.
Á myndinni er Auðunn Gestsson höfundur ljóðsins ásamt listaverkinu.
Hægt er nálgast dagskrána hér á pdf formi.
Opnun List án landamæra verður í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag klukkan 17.
21. apríl 2010
Sameiginlegur frćđslufundur
Sameiginlegur fræðslufundur verður haldinn í Bjarkarási Stjörnugróf 7 þriðjudaginn 27. apríl klukkan 16:30 - 19:00
Fundarefni verður:
- Starfsstellingar.
- Notkun, tilgangur og umgengi á hjálpartækjum.
Skráning fer fram á hverjum vinnustað fyrir sig fyrir 22. apríl
Sjá nánari auglýsingu hér
19. apríl 2010
Opiđ hús og sumarmarkađur hjá Ási vinnustofu
12. apríl 2010
Gróđurhúsiđ Bjarkarási
Gúrkurnar eru komnar til sölu í gróðurhúsi Bjarkaráss. Eitthvað er til af kryddjurtum í pottum, s.s. basil, koriander, dill og timian. Einnig eru til í pottum mini tómatar, mini paprika og mini eggaldin plöntur. Það er ótrúlega spennandi að rækta í glugganum heima. Þessar plöntur eru til í takmörkuðu magni, fyrstir koma, fyrstir fá.
Verð á plöntum er:
- Tómatar, paprika og eggaldin 650 kr.
- Basil 450 kr.
- Dill 400 kr.
- Timian 450 kr.
- Koriander 450 kr.
Til að sjá auglýsinguna í prenthæfu formi ýtið hér.
7. apríl 2010
Hvađ ţarft ţú ađ vita um öldrun og fólk međ ţroskahömlun?
Námskeið fyrir starfsfólk Áss styrktarfélags sem starfar við búsetu og aðstoðar eldra fólk.
Aðaláhersla fræðslunnar er hækkun lífaldurs, umfjöllun um heilabilun almennt og sérstaklega tengsl milli Downs heilkenna og Alxheimer. Að skapa tækifæri fyrir fólk sem er að glíma við sömu aðstæður til að hittast, ræða starfið og tengja reynslu sína og þekkingu við nýjar upplýsingar
Haldið mánudaginn 12. og 19. apríl næstkomandi, á skrifstofu félagsins, Skipholti 50 C, 3.hæð. Sjá nánar hér.
7. apríl 2010
Fréttabréf Lćkjaráss
22. mars 2010
Leikrćn tjáning á Lyngási
Harpa Arnardóttir leikkona var með síðasta tímann í bili föstudaginn 19. mars og fékk hún góðan gest með sér, Hilmar Örn Agnarsson organista. Þemað var "Frelsið - Tákn um umbreytingu"
19. mars 2010
Lyngáshittingur fyrir fyrrverandi og núverandi starfsmenn
Opið hús verður fyrir fyrrverandi og núverandi starfsmenn á Lyngási frá kl 16:00 – 19:00 þann 24. apríl og höfum við hug á því að bjóða uppá veitingar og gos með því að hafa 1000 kr. í þátttökugjald. Velkomið að taka með sér önnur drykkjarföng. Sjáið nánar á döfunni.
18. mars 2010
Sjálfsstyrking
Á síðustu vikum hafa verið þrír 3. árs þroskaþjálfanemar í vettvangsnámi á skrifstofu Áss styrktarfélags. Hluti af þeirra vinnu var m.a. að setja saman námskeið í sjálfsstyrkingu fyrir konur. Til þess nýttu nemarnir bókina Gott hjá þér! en það er kennslubók í ákveðniþjálfun fyrir fólk með þroskahömlun og er gefin út af félaginu. Námskeiðinu lauk í dag og voru þátttakendur almennt mjög ánægðir með hvernig til tókst.
12. mars 2010
Breyttur lífstíll
Átta vikna átaksnámskeiðinu í Breytta lífstílnum lauk í dag. Alls voru 11 þátttakendur og voru þeir flestir ánægðir með árangur sinn, en árangur mælist ekki eingöngu á vigtinni heldur einnig í þeim smáu hlutum sem viðkomandi hefur náð að breyta í fæðuvali sínu, betri líkamlegri og andlegri líðan.
Annað námskeið hefst í haust og verður það nánar auglýst síðar.
24. febrúar 2010
Sumarsćla á Suđurlandi
Í sumar býður Ás styrktarfélag upp á sumardvöl á Suðurlandi. Eins og sl. sumar höfum við fengið aðstöðu í frábæru húsi Bergmáls sem er í landi Sólheima í Grímsnesi.
Aðbúnaður innandyra er frábær, öll herbergi með eigin wc og sturtu. Einnig er sameiginleg aðstaða rúmgóð og býður upp á óendanlega möguleika.
Dagskrá sumardvalarinnar verður fjölbreytt að vanda og lögð áhersla á að njóta samveru og útivistar. Leitast er við að virkja frumkvæði þátttakenda, kynna fyrir þeim dagskrártilboð og mæta óskum þeirra.
Nánari upplýsingar er hægt að finna hér.
23. febrúar 2010
Spennandi námskeiđ framundan hjá Ţekkingarsetrinu.
Hér að neðan eru 3 mismunandi námskeið ætluð þeim sem eru 20 ára og eldri.
Smellið á hverja mynd fyrir sig til að sjá hana í heild sinni
Sjá nánar hjá Þekkingarsetrinu
____________________________________________________________________
18. febrúar 2010
Fréttabréfiđ frá Lćkjarási
17. febrúar 2010
Öskudagur á Lyngási
Öskudagurinn var haldin með hefðbundnum hætti á Lyngási, hér eru yngstu krakkarnir með aðkeyptu fótboltastelpunni og bakaranum :)
15. febrúar 2010
Leikrćn tjáning međ Hörpu Arnardóttur leikkonu
Leikræn tjáning á Lyngási
Harpa Arnardóttir leikkona byrjaði sl. föstudag með námskeið sem felur í sér upplifun og skynjun í augnablikinu.
9. febrúar 2010
Upprifjunar námskeiđ í skyndihjálp
2 upprifjunar námskeið í skyndihjálp verða haldinn þann 18. og 19. febrúar 2010 fyrir starfsfólk Áss vinnustofu sem ekki geta nýtt sér almenn námskeið.
Ath. nauðsynlegt er að hafa lokið grunnnámskeiði til að geta farið á upprifjun.Leiðbeinandi er Laufey Gissurardóttir þroskaþjálfi og leiðbeinandi í skyndihjálp.
Fyrra námskeiðið verður haldið:18. febrúar kl. 13-15:30 Á skrifstofu Áss styrktarfélags í Skipholti 50c
Seinna námskeiðið verður haldið: 19. febrúar. Kl. 9:00-11:30 Á skrifstofu Áss styrktarfélags í Skipholti 50c
Vinsamlegast skráið ykkur á þátttökulistann fyrir 10. febrúar
11. janúar 2010
Gott hjá ţér!
Gott hjá þér! er kennsluefni í ákveðniþjálfun sem eflir sjálfstraust og er ætlað fagfólki sem vinnur með fólki með þroskahömlun. Fræðsluefnið nýtist jafnt unglingum sem fullorðnum.
Gott hjá þér! heitir á frummáli ThumbsUp! og hefur hlotið góðan orðstýr og verið margendurútgefið í Bretlandi. Efnistökin í bókinni byggjast á að þátttakendur taka þátt í fjölmörgum og skemmtilegum verkefnum, æfingum og hlutverkaleikjum, sem styrkja sjálfstraust og auka hæfileika til að verða ákveðnari og takast á við þær áskoranir sem fólk stendur oft frammi fyrir við ýmsar athafnir daglegs lífs.
11. janúar 2010
Vinningsnúmer í happdrćtti Áss styrktarfélags 2009
I. vinningur: VW Polo að andvirði kr. 2.600.000. kom á miða númer 7568
II.vinningur: Heimilistæki frá Smith & Norland að andvirði kr. 240.000. hver vinningur.
1437 - 1624 - 3070
5710 - 7417 - 12686
15996 - 16935 - 17264
19032
Félagið þakkar veittan stuðning






