Fréttir
22. mars 2010
Leikræn tjáning á Lyngási
Harpa Arnardóttir leikkona var með síðasta tímann í bili föstudaginn 19. mars og fékk hún góðan gest með sér, Hilmar Örn Agnarsson organista. Þemað var "Frelsið - Tákn um umbreytingu"
19. mars 2010
Lyngáshittingur fyrir fyrrverandi og núverandi starfsmenn
Opið hús verður fyrir fyrrverandi og núverandi starfsmenn á Lyngási frá kl 16:00 – 19:00 þann 24. apríl og höfum við hug á því að bjóða uppá veitingar og gos með því að hafa 1000 kr. í þátttökugjald. Velkomið að taka með sér önnur drykkjarföng. Sjáið nánar á döfunni.
18. mars 2010
Sjálfsstyrking
Á síðustu vikum hafa verið þrír 3. árs þroskaþjálfanemar í vettvangsnámi á skrifstofu Áss styrktarfélags. Hluti af þeirra vinnu var m.a. að setja saman námskeið í sjálfsstyrkingu fyrir konur. Til þess nýttu nemarnir bókina Gott hjá þér! en það er kennslubók í ákveðniþjálfun fyrir fólk með þroskahömlun og er gefin út af félaginu. Námskeiðinu lauk í dag og voru þátttakendur almennt mjög ánægðir með hvernig til tókst.
12. mars 2010
Breyttur lífstíll
Átta vikna átaksnámskeiðinu í Breytta lífstílnum lauk í dag. Alls voru 11 þátttakendur og voru þeir flestir ánægðir með árangur sinn, en árangur mælist ekki eingöngu á vigtinni heldur einnig í þeim smáu hlutum sem viðkomandi hefur náð að breyta í fæðuvali sínu, betri líkamlegri og andlegri líðan.
Annað námskeið hefst í haust og verður það nánar auglýst síðar.






