Fréttir
29. september 2010
Samfélagsátak og starfskynning
Hótelkeðjan Rezdior Hótel Group stendur fyrir árlegu samfélagsátaki. Radisson blu í Reykjavík er hluti af þessari keðju og bauð samstarf við Ás styrktarfélag. Starfsmönnum frá Ási vinnustofu var boðið að koma í starfskynningu á hótelinu. Verkefnið stóð síðustu 2 vikur og voru þátttakendur alls 8. Mætti hver og einn í 2 daga ogfékk fjölbreytta kynningu í öllum starfsdeildum með aðstoð starfsfólks hótelsins.
Í dag býður Radisson öllum þátttakendum að taka þátt í námskeiði í bakstri sem fer fram á hótelinu og um leið tækifærið nýtt til að kveðja og ljúka frábæru átaki, þá er þeim sem héldu utan um verkefnið frá skrifstofunni og Ási vinnustofu boðið í kaffið.
Hægt er að sjá fleiri myndir með því að ýta á hnappinn meira
6. september 2010
Stuðningur frá Lionsklúbbnum Frey
1. september 2010
Skráningu í SIS mat í búsetu lokið
Um þessar mundir fer fram mat á stuðningsþörf allra einstaklinga á landinu sem eru í búsetuþjónustu fyrir fatlaða. Stuðningsþörfin er metin með bandarísku mati, Supports Intensity Scale (Mat á stuðningsþörf eða SIS mat), sem jafnframt er verið að staðla fyrir íslenskar aðstæður.
Í Reykjavík nær matið til yfir 400 einstaklinga sem njóta búsetuþjónustu hjá þremur rekstraraðilum, SSR, Ási styrktarfélagi og Reykjavíkurborg. Skráningu í SIS er lokið hjá Ási styrktarfélagi





