Fréttir
30. maí 2006
Félaginu færðar gjafir
Lionsklúbburinn Freyr gaf nú í vor margar góðar gjafir til sambýla félagsins. Sambýlið í Lálandi fékk sófaborð, sófa og sjónvarp, Víðihlíð 5 fékk eldhúsborð og stóla, Víðihlíð 7 DVD spilara, sjónvarp og sjónvarpsskáp, Víðihlíð 9 hljómflutningstæki og ísskáp og Víðihlíð 11 fékk sófasett. Að auki fékk sambýlið í Auðarstræti nýja ísskápa í allar íbúðir.
Lækjarási bárust góðar gjafir frá Vinahjálp, lyftari við heita pottinn og myndavél.






