Fréttir
3. nóvember 2008
Átaksnámskeiðið Breyttur lífsstíl hófst 20. október 2008.
Námskeiðið er á vegum World Class og Áss styrktarfélags. World Class útvegar aðstöðuna og þjálfarann Geir Gunnar Markússon. Ás styrktarfélag býður á móti upp á leiðbeinanda sem er Sigríður Kristjánsdóttir þroskaþjálfi. Námskeiðið varir í 8 vikur og eru 10 þátttakendur.
Þátttakendur mæta 3 x í viku í hreyfingu í World Class en skuldbinda sig jafnframt til hreyfa sig utan þess tíma. Auk þess fá þeir fræðslu 2 x í viku sem leiðbeinandi Áss sér um. Lögð er áhersla á sjálfstæði í tækjasalnum þannig að hver þátttakandi eigi möguleika á að mæta á sínum forsendum í framtíðinni.





