Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

29. janúar 2009

Nýtt átaksnámskeiðið í Breyttum lífsstíl

Nýtt átaksnámskeiðið í Breyttum lífsstíl hófst 12. Janúar 2009. Námskeiðið er á vegum World Class og Áss styrktarfélags.  World Class útvegar aðstöðuna og þjálfarann Geir Gunnar Markússon. Ás styrktarfélag býður á móti upp á leiðbeinanda sem er Sigríður Kristjánsdóttir þroskaþjálfi. Námskeiðið varir í 8 vikur eins og önnur hefðbundin átaksnámskeið hjá World Class. Námskeiðið kostar 23900 kr. 
Þátttakendur mæta 3 x í viku í hreyfingu í World Class en skuldbinda sig jafnframt til hreyfa sig utan þess tíma.  Auk þess fá þeir fræðslu 2 x í viku sem leiðbeinandi Áss sér um. Lögð er áhersla á sjálfstæði í tækjasalnum þannig að hver þátttakandi eigi möguleika á að mæta á sínum forsendum í framtíðinni.
Átaksnámskeiðið er áframhaldandi vinna á þróunarverkefninu þar sem leitast er eftir að finna út það form sem nýtist sem flestum. Hefðbundið átaksnámskeið hjá World Class er haft til viðmiðunar en auk þess er bætt inn örari fræðslu. Stefnt er á að halda annað 8 vikna námskeið eftir páska.
Nánari upplýsingar fást hjá Önnu Lilju Magnúsdóttur, verkefnastjóra Breytts lífsstíls á skrifstofu félagsins.  Tölvunetfang er annalilja@styrktarfelag.is


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir