Fréttir
20. mars 2009
Námskeið í Breyttum lífsstíl
Næsta námskeið í Breyttum lífsstíl hefst 20. apríl næstkomandi. Námskeiðið er hefðbundið 8 vikna átaksnámskeið sem er aðlagað að fólki með þroskahömlun. Þjálfari frá World Class er Geir Gunnar Markússon og þroskaþjálfi frá Ási styrktarfélagi er Sigríður Kristjánsdóttir.
Mætt er í World Class 3 x í viku þar sem æft er, farið yfir matar- og hreyfidagbækur auk fræðslu. Æfingadagarnir eru mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl. 13:30 - 14:30. Námskeiðið kostar 23.900
Skráning er hafin í síma: 414-0500 eða á netfang: annalilja@styrktarfelag.is
Anna Lilja Magnúsdóttir,verkefnastjóri Breytts lífsstíls





