Fréttir
5. maí 2009
Starfsdagur á Lækjarási
Starfsdagur var í Lækjarási 17.apríl síðastliðinn. Fyrir hádegi voru Erna Einarsdóttir og Laufey Gissurardóttir með öldrunarfræðslu sem var mjög áhugaverð. Þær ræddu um heilabilun bæði almennt og hjá fólki með Down's. Einnig töluðu þær um framtíðarsýn Áss styrktarfélags í öldrunarmálum og kynntu stuttlega könnun sem þær gerðu á högum fólks með þroskahömlun 45 ára og eldri. Þær voru síðan með kortaspurningar um hvernig starfsfólk vildi vinna áfram með efni fyrirlestursins. Flestir vildu sjá einhverskonar fræðslu og umræður og þónokkrir höfðu áhuga á því að skoða almenna öldrunarþjónustu. Það er nokkuð ljóst að hópurinn sem kemur í þjónustu í Lækjarás er að eldast og nýttist þessi fræðsla okkur mjög vel. Verður spennandi að halda áfram með vinnu sem tengist öldrunarmálum. Eftir mat skiptu starfsmenn sér í þrjá hópa og heimsóttu, Iðjuberg, Maríuhús og Fannborg. Komu starfsmenn svo aftur í Lækjarás og ræddu um upplifun sína af þessum heimsóknum.
Guðbjörg Haraldsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi





