Fréttir
25. maí 2009
Bjarkarás skoðar Boston
Dagana 22. - 26. apríl lögðu leiðbeinendur í Bjarkarási land undir fót og héldu til Boston, Ma í Bandaríkjunum. Þeir heimsóttu vinnustaði fólks með þroskahömlun í nágrenni Boston, skoðuðu borgina og kynntu sér lítillega verslun á svæðinu.
Á fimmtudeginum 23. apríl var haldið til Waltham. Roz Rubin framkvæmdastjóri GWARC, Inc. tók þar á móti okkur, sagði frá starfseminni og sýndi okkur tvo vinnustaði á þeirra vegum. Móttökurnar voru einstaklega hlýjar og hafði hún undirbúið sig vel. Meðal annars má nefna að húsin voru skreytt íslenska fánanum og móttökuskiltum á íslensku. Fólkið sem þarna var í þjónustu og vinnu hafði haft þemavinnu tengda Íslandi dagana fyrir heimsókn okkar. Einnig fékk hópurinn áritað þakkarskjal frá borgarstjóra Waltham.
GWARC,Inc. var stofnað af foreldrum fatlaðra barna og ungmenna árið 1956. Í dag er reksturinn á ábyrgð og kostnað ríkisins þó enn sé mikil vinna lögð í að afla styrkja og gjafa. Þeir veita dagþjónustu, starfsþjálfun og vinnu á tveim starfsstöðvum og stýra hópum sem vinna við þrif í grunnskólum bæjarins. Þeir styðja fólk út á vinnumarkaðinn og veita ráðgjöf til fólks með fötlun og fjölskyldna þeirra. Ef áhugi er fyrir hendi þá er í Bjarkarási til diskur með nánari kynningu á starfsemi þeirra. Roz Rubin gaf einnig ágætar upplýsingar um lagaumhverfið í Massachusetts og hvernig eftirliti er háttað við starfsemina og þjónustuna sem þau veita.
Föstudaginn 24. apríl var haldið til Hyde park og litið inn á Essence of Thyme Café and giftshop. Þar tók Cindy Anderson á móti hópnum og kynnti starfsemina. Megin starfsemi þeirra felst í rekstri mötuneytis sem sendir um 900 matarbakka á dag í grunnskóla bæjarins. Þar fær fólk með þroskahömlun þjálfun í ýmsum eldhússtörfum og aðstoð við að sækja um slík störf í samfélaginu. Þeir hafa einnig vinnustofu þar sem fólk vinnur við skapandi starf og eru afurðirnar seldar í gjafaverslun sem þau reka í sama húsnæði. Þau reka líka lítið kaffihús og selja þar notaðar bækur auk léttra vetinga sem matreiddar eru á staðnum.
Laugardagur og sunnudagur voru frjálsir hjá ferðalöngunum og voru þeir vel nýttir, enda hitabylgja í borginni. Meðfylgjandi er slóð á grein sem skrifuð var um heimsóknina í Daily News Tribune í Waltham.
http://www.dailynewstribune.com/homepage/x740498185/Iceland-visitors-tour-GWARC-facilities
![]() |
![]() |
![]() |

_1885570650.jpg)
_871922845.jpg)
_1970030380.jpg)




