Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

12. júní 2009

Heilsuvika í Lækjarási og Bjarkarási


Vikuna 25-29 maí var árleg heilsuvika í Lækjarári og Bjarkarási. Dagskráin var fjölbreytt og eitthvað skemmtilegt í boði hvern dag vikunnar.

Dagurinn hófst á morgunleikfimi og boðið var uppá göngutúra tvisvar á dag fyrir þá sem vildu. Á miðvikudeginum var löng ganga, gengið var í Nauthólsvík þar sem boðið var uppá banana og ávaxtasafa. Mætingin var góð og veðurguðirnir verðlaunuðu mannskapinn með sól og sumaryl.

Kristín í Lækjarási bauð uppá hollustu - konfektgerð. Námskeiðið var vel sótt og vakti konfektið mikla lukku. Á þriðjudegi var slegið upp Salsa-balli í Lækjarási. Enn og aftur var dýrindis veður og var það haldið undir berum himni. Guðbjörg og Essý sýndu grunnspor í salsadansi.

Lokadegi heilsuvikunnar var frestað vegna veðurs til miðvikudags, 3 júní. Heilsuvikan endaði í grófinni á milli Lækjaráss og Bjarkaráss, þar voru settar upp fjölbreyttar stöðvar og farið í ýmsa leiki. Keppt var á milli húsa í reipitogi og boðhlaupi. Staðan var hnífjöfn í lokin þar sem Lækjarás vann boðhlaupið og Bjarkarás reipitogið.

Bocca  Boðhlaup 
 
Hlaupið á fullu
 Í Nauthólsvík
 Konfektgerð  Reipitog
 Salsa í garðinum  Sigrún og Bjarki



Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir