Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

25. júní 2009

Grill og Greifar


Þriðjudaginn 16. júní kom hin sívinsæla hljómsveit Greifarnir í heimsókn í Bjarkarás.   Starfsfólki skrifstofu var boðið í grillveislu í hádeginu og að málsverði loknum bættust gestir frá Lækjarási og Húsinu í hópinn. Greifarnir léku og sungu fyrir okkur í góða klukkustund og gat fólk almennt ekki stillt sig um að dansa með. Einhverjir brugðu sér á svið og tóku lagið með hljómsveitinni. Þetta var skemmtileg tilbreyting frá hversdagsleikanum og kunnum við Greifunum góðar þakkir fyrir.
Greifarnir


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir