Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

2. júlí 2009

ÁRLEG RÁÐSTEFNA WORKABILITY EUROPE

 

 

 

 

 

 

26.-29. maí 2009

 

 

Crowne Plaza Hotel, Búkarest, Rúmeníu

 

 

 

***

 

 

Lokaályktun

 

 

 

Dagana 25.-29. maí 2009, héldu Motivation Romania og Shaw Trust ásamt Workability Europe árlega ráðstefnu Workability Europe um „Fjárhagslegar og efnahagslegar áskoranir: 2009 og áfram" í Búkarest.

 

Aðstandendur ráðstefnunnar eru þakklátir fyrir stuðning rúmenska ráðuneytis málefna fatlaðra og vilja einnig þakka það mikilsverða hlutverk sem þátttakendur og ræðumenn gegndu.

 

Þátttakendur frá 30 aðildarsamtökum frá 17 löndum sem og fulltrúar rúmenskra stjórnvalda, Evrópusambandsins og annarra sjálfstæðra samtaka voru viðstaddir ráðstefnuna.

 

1. Kynningar og umræður á ráðstefnunni sýndu sameiginlegar áhyggjur þátttakanda um framtíðarstarfsemi geirans á þessum tímum efnahagsumbrota. Flestir meðlimir Workability Europe skýrðu frá því að heimskreppan hefði þegar haft bein áhrif á þá. Sum aðildarsamtök greindu frá allt að 30% minnkun atvinnu og tekna, sem tefldi sjálfbærni yfirstandandi starfsemi í tvísýnu á meðan þessir efhagslegu erfiðu tímar standa yfir. Þetta á sérstaklega við um störf í iðnaði.


2. Þátttakendur ráðstefnunnar létu í ljós áhyggjur sínar að árangur síðustu ára, jafnvel áratuga, væri um þessar mundir í hættu, sérstaklega yfirlýsing Reykjavíkurályktunarinnar frá 2003 um jöfn atvinnutækifæri fyrir fatlaða. Workability Europe og meðlimir vilja minna ríkisstjórnir og evrópustofnanir á að félagskerfi koma einnig á félagslegu jafnvægi og á tímum óvissu í efnahagsmálum eykst mikilvægi þessara kerfa fyrir samfélagið. Við bjóðum þess vegna viðeigandi stjórnvöldum sérþekkingu okkar og samstarf við að útvega lausnir og aðferðir til þess að takast á við þetta málefni með þekkingu okkar á mismunandi atvinnugerðum, eins og vernduðum vinnustöðum, atvinnu með stuðningi, félagslegum atvinnufyrirtækjum, verkþjálfunarverkefnum og endurhæfingarstarfsemi.

 

3. Þátttakendur eru sammála um að frekari aðgerða sé þörf til að hvetja fatlaða einstaklinga til þess að hefja þátttöku á vinnumarkaðnum, endurmennta sig og halda sig þar. Ríkisstjórnir, fyrirtæki og sjálfseignarstofnanir ættu þess vegna að auka framlag sitt.

Sem sé:

 

  • a) Fleiri og betri þjálfunarmöguleikar fyrir fatlaða.
  • b) Stuðningur við að fá vinnuveitendur til þess að viðurkenna getu fatlaðra einstaklinga.
  • c) Hámarka atvinnutækifæri fatlaðra og möguleika á endurkomu á vinnumarkað með því að koma á sjálfbærri atvinnu, í okkar eigin samtökum sem og á opnum vinnumarkaði.

 

4. Workability Europe er samt sem áður viss um að ríkjandi efnahagsvandi skapi einnig tækifæri fyrir meðlimi til þess að byggja upp sterkari og sjálfbærari samtök.

Nokkrar mikilvægar aðgerðir sem þátttakendur samþykktu eru:

 

  • a) Endurskoða rekstur og leita að hugvitssömum lausnum.
  • b) Örva samvinnu milli landa til þess að treysta þróun atvinnutækifæra fyrir fatlaða.
  • c) Skiptast á góðum vinnuháttum með samskiptum.

 

Að endingu eru það einungis sjálfbærir og samkeppnishæfir rekstraraðilar sem tryggja munu mannleg réttindi til vinnu, þar með talið fyrir fatlaða einstaklinga.

 

5. Workability Europe lætur í ljós þörfina fyrir að allir sem hagsmuna eiga að gæti (í stjórnkerfinu, atvinnulífinu og þjóðfélaginu) auki samvinnu til þess að vinna bug á ástandinu og gera fötluðum einstaklingum kleift að lifa afkastamiklu og sjálfstæðu lífi.

 

***

 

 

Workability Europe var stofnað árið 1995 og eru samtök þjónustufyrirtækja og vinnuveitenda fatlaðra einstaklinga. Workability Europe samanstendur af 40 aðildarsamtökum sem eru fulltrúar 1.5 milljón fatlaðra einstaklinga víðsvegar um Evrópu.

 

 

 

 

 

 

 

Samtök um vinnu- og  verkþjálfun

 



Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir