Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

2. júlí 2009

Kreppa ógnar atvinnu fatlaðra einstaklinga

 

          FRÉTTATILKYNNING

     Kreppa ógnar atvinnu fatlaðra einstaklinga

 

Þátttakendur árlegar ráðstefnu Workability Europe, evrópusamtaka þjónustufyrirtækja og vinnuveitenda fatlaðra einstaklinga, létu í dag ljós áhyggjur sínar um áhrif efnahagskreppurnar á atvinnuhorfur fatlaðra einstaklinga.

 

Á ráðstefnunni sem fram fór í Búkarest dagana 26.-29. maí síðastliðinn greindu meðlimir Workability Europe frá allt að 30% atvinnumissi sem og töluverðu tekjutapi. Þetta á sérstaklega við um ástandið í iðnaði. Hugsanlegt er að afleiðingar kreppunnar yrðu til þess að spilla þeim framförum sem náðst hafa undanfarin ár, jafnvel áratugi, í atvinnumálum fatlaðra.

 

Hans Vrind, forseti Workability Europe skýrði svo frá: „Núverandi störf fatlaðra eru í hættu og æ erfiðara er fyrir þennan varnarlausa hóp að finna ný störf. Við viljum fjárfesta í þeim samböndum sem til staðar eru við alla þá sem hlut eiga að máli til þess að takast á við þetta mikilvæga málefni."

 

Í margs konar vinnuhópum vann ráðstefnan að stefnumörkun til að vinna bug á erfiðleikunum. Þátttakendur ályktuðu að viðfangsefnin sem framundan eru verði að skoða sem tækifæri til að byggja upp sterkari samtök og sjálfbærari viðskiptalíkön með því að endurskoða starfsemi, koma hugvitsömum úrlausnum í framkvæmd, örva samvinnu milli landa og deila góðu verklagi milli meðlima.

 

Cristian Ispas, forseti Motivation Romania sagði: „Ráðstefnan í ár var sérstaklega mikilvæg þar sem hún aðstoðaði okkur að hjálpast að við bera kennsl á viðfangsefnin framundan á þessum tímum efnahagslægðar. Við vonumst til að fyrir vikið verðum við viðbúinn og fær um að takast á við vandamálin sem við stöndum frammi fyrir í þágu meðlima okkar."

 

Workability Europe og meðlimir þess minntu ríkisstjórnir og evrópustofnanir á að félagskerfi koma einnig á félagslegu jafnvægi og á tímum óvissu í efnahagsmálum eykst mikilvægi þessara kerfa fyrir samfélagið.

 

Workability Europe býður þess vegna viðeigandi stjórnvöldum sérþekkingu sína og samvinnu við að útvega lausnir og aðferðir til þess að taka á málefninu.

 

 

 

Lokaályktun Búkarest ráðstefnunnar fylgir með þessari fréttatilkynningu.

 

 

Workability Europe eru evrópusamtök þjónustufyrirtækja og vinnuveitenda fatlaðra einstaklinga. Workability Europe koma fram fyrir hönd 40 evrópskra samtaka sem samtals hafa 1,5 milljón einstaklinga í vinnu.

 

 

 

Til að fá nánari upplýsingar hafið samaband við undirritaðan:

 

Kristján Valdimarsson

Formaður  Hlutverks - Samtaka um vinnu og verkþjálfun

kvald@smfr.is

símar 554 3277 og 897 3712

 

Samtök um vinnu- og  verkþjálfun


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir