Fréttir
22. september 2009
Námskeið í Breyttum lífsstíl
Breyttur lífsstíl hófst í gær og stendur eins og áður í 8 vikur. Tímarnir verða á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá klukkan 14 - 15. Alls eru 10 þátttakendur nú í haust og mættu allir galvaskir í gær þar sem Sigríður Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi og Geir Gunnar Markússon þjálfari tóku á móti.
Áherslur eru m.a. fæðuhringurinn, matardiskurinn, reglurnar 5 í mataræðinu, hreyfing í World Class, hreyfing utan World Class og að hver og einn setji sér markmið fyrir námskeiðið. Og síðast en ekki síst að hafa gaman.
Annað námskeið mun hefjast eftir áramót um miðjan janúar.





