Fréttir
30. nóvember 2009
Nýtt kennsluefni komið í sölu
Verum örugg er kennsluefni sem sett er upp í námskeiðsformi og ætlað fóki með þroskahömlun 18 ára og eldra. Efnistök byggjast í fyrsta lagi á sjálfsstyrkingu, í öðru lagi á að læra að greina kynferðislega misnotkun og í þriðja lagi hvað sé hægt að gera til þess að tryggja öryggi sitt sem best.
Kennsluefnið er unnið í samstarfi við Landssamtökin Þroskahjálp og Fjölmennt - símenntunarmiðstöð fyrir fatlað fólk.
Kennsluefnið samanstendur af:
- Handbók og geisladiski með nákvæmum kennsluleiðbeiningum að 38 verkefnum og myndum og kostar kr. 32.000.
- Vinnubók ætluð þeim sem sækja námskeiðið og kostar hvert stk. kr. 1800
- Bæklingnum Að vera öruggur en hann má jafnframt fá ókeypis hjá Landssamtökunum Þroskahjálp.
- Námskeið um notkun á kennsluefninu í heild, tvær klukkustundir fylgja frítt með fyrir þá sem kaupa handbókina og ætla sjálfir að standa fyrir námskeiðum
Handbókin og vinnubókin eru til sölu hjá Ási styrktarfélagi.
Nánari upplýsingar veitir María Jónsdóttir í síma 414 0500 eða á maria@styrktarfelag.is





