Fréttir
30. nóvember 2009
Jólamarkaður / Jólakort til styrktar Lyngási
Laugardaginn 5. desember verður jólamarkaður frá kl 12 - 17 í Félagsgarði í Kjós. Á boðstólum verður ýmiskonar handverk og matvælaframleiðendur hér í kjósinni verða með margskonar góðgæti til sölu. Hægt er að byrja daginn á því að ná sér í alíslenkst jólatré á skógræktarsvæðinu við Fossá og fá sér svo kakó og vöfflu hjá kvenfélaginu í félagsgarði auk þess að skoða það sem þar er í boði.
Jólakort til styrktar Lyngási
Sögumilun hefur framleitt jólakort sem verða til sölu á jólamarkaðnum. Allur ágóði af sölu þeirra rennur til Lyngáss, dagvistar fyrir fötluð börn og ungmenni, sem er hluti af af Ás styrktarfélagi. Myndin á jólakortinu er búin til úr pappír, eggjabökkum, álfilmu af smjördollu og gömlu klæði.
Að auki verður sögumiðlun með ýmsar bækur, geisladiska og fleira með þjóðlegu ívafi á boðstólum.
Lyngás
Á Lyngási dvelja fötluðustu börnin hverju sinni. Á tímum sem þessum er mikilvægt að gleyma ekki þessum hóp sem þarf á öflugum málsvörum að halda. Það góða starf sem þarna fer fram skiptir sköpum í lífi þessara einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Við viljum leggja okkar að mörkum og um leið þakka fyrir þá frábæru þjónustu sem við fengum er sonur okkar dvaldi þarna í rúmt ár. Eins árs var hann varla farinn að geta setið uppréttur en ári síðar labbaði hann út af Lyngási og er nú í almennum leikskóla.
Pakki með 8 jólakortum og umslögum kostar 1000 krónur
Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á jólamarkaðinn en vilja engu að síður leggja þessu góða málefni lið geta pantað kort í gegnum tölvupóst og þá bætist við sendingarkostnaður.
Vonumst til að sjá sem flesta á jólamarkaðnum.
Gyða S. Björnsdóttir
Netfang; gyda@sogumidlun.is





