Fréttir
11. janúar 2010
Gott hjá þér!
Gott hjá þér! er kennsluefni í ákveðniþjálfun sem eflir sjálfstraust og er ætlað fagfólki sem vinnur með fólki með þroskahömlun. Fræðsluefnið nýtist jafnt unglingum sem fullorðnum.
Gott hjá þér! heitir á frummáli ThumbsUp! og hefur hlotið góðan orðstýr og verið margendurútgefið í Bretlandi. Efnistökin í bókinni byggjast á að þátttakendur taka þátt í fjölmörgum og skemmtilegum verkefnum, æfingum og hlutverkaleikjum, sem styrkja sjálfstraust og auka hæfileika til að verða ákveðnari og takast á við þær áskoranir sem fólk stendur oft frammi fyrir við ýmsar athafnir daglegs lífs. Þættir sem meðal annars er farið yfir eru:
-
- Tilfinningar
- Líkamstjáning
- Framkoma
- Gagnrýna og taka gagnrýni.
Gott hjá þér! er til sölu hjá Ási styrktarfélagi og kostar kr. 28.000. Frekari upplýsingar um þetta efni gefur María Jónsdóttir í síma 4140500 eða s tölvupósti á netfangið: maria@styrktarfelag.is





