Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

10. maí 2010

Stofnun ársins 2010 - Ás styrktarfélag í 7. sæti

Könnunin Stofnun ársins er samvinnuverkefni SFR og VR. Þátttakendur voru spurðir út í vinnutengda þætti eins og trúverðugleika stjórnenda, sjálfstæði í starfi, vinnuálag, vinnuskilyrði, álag og kröfur, sveigjanleika í starfi og fleira. Könnunin er mikilvægt framlag til vinnumarkaðsrannsókna á Íslandi, enda sú stærsta sinnar tegundar. 

Umferðarstofa var í fyrsta sæti, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi í öðru og Landgræðsla ríkisins í því þriðja. Ás styrktarfélag var í sjöunda sæti af 200 stofnunum sem tóku þátt í könnuninni.

Ás styrktarfélag skorar ágætlega (af 8 mældum þáttum),  í öllu nema launum og og sveigjanleika í starfi.   Besta skorið er í trúverðugleika stjórnenda og í ánægju og stolti starfsmanna með stofnunina.    

Að þessu sinni tókum við ekki þátt óháð stéttarfélögum heldur svöruðu einungis SFR Starfsmenn. Sjá nánar um könnunina http://www.sfr.is/



Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir