Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fréttir

2. júní 2010

Mat á stuðningsþörf (SIS): Lagt fyrir hjá Ási styrktarfélagi í júlí og ágúst 2010

sis myndMat á stuðningsþörf (SIS) er þróað af bandarísku samtökunum AAIDD til að meta stuðningsþörf fólks með þroskahömlun og skyldar raskanir.  Matið hefur verið í notkun frá 2003 en tilgangur þess er að skilgreina þann viðbótarstuðning sem fullorðið fatlað fólk þarf á að halda til búsetu, vinnu og samfélagsþátttöku. Upplýsingaöflun fer fram í viðtali sérstakra matsmanna við hinn fatlaða sjálfan eða einhvern sem þekkir viðkomandi vel. Spurt er um atriði sem snúa að færni á 6 sviðum aaidd mynddaglegs lífs: heimilishaldi, að fara ferða sinna, sí- og endurmenntun, vinnu, heilsu og öryggi, og félagslegri þátttöku. Niðurstöður matsins sýna stöðu viðkomandi sem hlutfall af stuðningsþörf samanburðarhóps fatlaðs fólks. Frekari upplýsingar um matið má sjá á heimasíðu þess: www.siswebsite.org

Fyrirlögn og stöðlun SIS-matsins er þáttur í undirbúningi á yfirfærslu málaflokks fatlaðra til sveitarfélaga en öllum á landinu sem njóta sérstakrar búsetuþjónustu verður boðin þátttaka.  Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins (GRR) hefur  haft umsjón með þýðingu SIS-matsins og stýrir staðalbindingu sem fer fram samhliða fyrirlögn matsins.  Ábyrgðarmaður  verkefnisins er dr. Tryggvi Sigurðsson, sviðsstjóri við GRR en verkstjóri er Guðný Stefánsdóttir, þroskaþjálfi.  Skráning og úrvinnsla gagna er á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Þegar verkefninu lýkur munu frumgögn verða afhent þjónustuaðilum og munu nýtast við gerð einstaklingsáætlana. Persónuvernd hefur samþykkt verkefnið og Vísindasiðanefnd gefið leyfi fyrir þeim þætti sem snýr að staðalbindingu.  Þá hefur hagsmunasamtökum fatlaðra og öryrkja og trúnaðarmanni fatlaðra í Reykjavík verið kynnt verkefnið. Fyrirlögn matsins í Reykjavík nær til:
  • íbúa í búsetuþjónustu og frekari liðveislu hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR)
  • íbúa í búsetuþjónustu og frekari liðveislu á vegum Áss styrktarfélags  og
  • fatlaðra íbúa í þjónustukjörnum á vegum Reykjavíkurborgar.

Samtals nær verkefnið til um 420 einstaklinga í Reykjavík.  Áætlað er að verkefnið hefjist um miðjan maí og verði lokið  um miðjan september í haust.  Áður en kemur að fyrirlagningu mun verkefnið kynnt fyrir væntanlegum þátttakendum  með kynningarbréfi og leitað eftir að þeir gefi samþykki fyrir þátttöku í verkefninu. Óskað er eftir aðstoð forstöðumanna við kynninguna en þátttaka í verkefninu er frjáls af hálfu íbúa. Fyrirlögnin fer fram með þeim hætti að fyrst ræðir matsmaðurinn við forstöðumann og fær almennar upplýsingar um fötlun íbúans og búsetuaðstæður. Þá fer fram viðtal matsmanns við forstöðumann eða starfsmann sem þekkir íbúann vel.  Að lokum fer matsmaðurinn í heimsókn á heimili íbúa. Heimsóknin þarf að fara fram sem fyrst í kjölfar viðtals.

Eftirfarandi er nánari lýsing á ferli fyrirlagnar hjá Ási styrktarfélagi :

  • Forstöðumaður sendir tölvupóst til Áss styrktarfélags (erna@styrktarfelag.is) þegar fyrir liggur hvenær fyrirlögn getur átt sér stað við íbúa og starfsmenn.
  • Forstöðumaður fær send kynningar- og samþykkisblöð. Forstöðumaður aðstoðar við að kynna verkefnið fyrir hverjum íbúa og leitar samþykkis fyrir þátttöku.
  • Forstöðumaður hringir í aðstandendur og upplýsir um verkefnið.
  • Forstöðumaður skilar samþykkisblöðum til skrifstofu og fær spurningarlista afhentan.
  • Forstöðumaður tekur saman upplýsingar um fötlun og bakgrunn þeirra íbúa sem samþykkja þátttöku.
  • Forstöðumaður sendir tölvupóst til skrifstofu  (erna@styrktarfelag.is) með ósk um tíma fyrir viðtöl við matsmann og tíma fyrir heimsókn hans. Hagræði er í því að sami matsmaður meti alla íbúa á sama heimili . Forstöðumaður gefur upp nafn þess starfsmanns sem kemur í viðtalið ef það er annar en hann sjálfur. Viðtöl fara fram á skrifstofu félagsins að Skipholti 50c á virkum dögum milli kl. 9:00 og 16:00. Viðtöl fara ekki fram á þeim tíma sem skrifstofan  er lokað vegna sumarleyfa (19. júlí - 6. ágúst).
  • Forstöðumaður hittir matsmann á skrifstofu Áss styrktarfélags og svarar spurningum um stuðningsþörf og aðstæður íbúa. Í framhaldi af því fara fram viðtöl matsmanns og forstöðumanns/starfsmanns um hvern íbúa. Hvert viðtal tekur um klukkutíma.
  • Þegar viðtali við starfsmenn er lokið fer matsmaður í heimsókn á heimili íbúa innan tveggja sólarhringa. Matsmaður ræðir við íbúa og aflar viðbótarupplýsinga um stuðningsþörf. Ef íbúi óskar getur aðstandandi aðstoðað hann í viðtalinu. Viðtal við hvern íbúa tekur um 20-30 mínútur.
 Umsjónarmaður  verkefnisins af hálfu Áss styrktarfélags er  Erna Einarsdóttir sem veitir  frekari upplýsingar sé þess óskað í sima 414-0500.


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir