Fréttir
1. júní 2010
Gjöf úr Áshildarsjóði
Áshildarsjóður var stofnaður af foreldrum Áshildar Harðardóttur en hún var til fjölda ára í þjónustu hjá Styrktarfélaginu, m.a. í búsetu á sambýli og dagvíst í Lækjarási. Upprunalega var sjóðurinn aðalega ætlaður til að bæta lífsgæði og aðstæður Áshildar. En þar sem megintilgangi sjóðsins lauk við fráfall Áshildar þann 22. júní 2008 hefur hann verið lagður niður og eigum hans ráðstafað til Áss styrktarfélags í samræmi við skipulagsskrá sjóðsins. Eignum sjóðsins kr. 15.740.970,- verður varið til kaupa og uppsetningar sundpotts (cross trainer) í Lækjarási og byggingar yfir hann.
Ás styrktarfélag þakkar stjórn sjóðsins, þeim Snæbirni Ásgeirssyni, Magnúsi Kristinssyni og Hafliða Hjartarssyni ánægjuleg samskipti á liðnum árum.





