Fréttir
16. júní 2010
Heilsuvika
Vikuna 31. maí til 4. júní var haldin heilsuvika í Bjarkarási og Lækjarási. Heilsuvikan er orðinn fastur liður í starfsemi staðanna og dagskráin orðin nokkuð fastmótuð. Föstu liðirnir eru göngutúrar tvisvar sinnum á dag og matseðillinn er á hollum nótum. Að þessu sinni byrjuðum við á að fá kennslu í að útbúa heilsudrykk sem allir geta gert heima og allir fengu að smakka.
Við fórum því næst í lautarferð í Fossvogsdal með nesti og nýja skó, sungum og höfðum gaman.
Við fengum svo frábæra danskennslu frá Agnesi í Auðarstræti. Hún kenndi okkur línudans og hringdans og að lokum sýndi hún, ásamt manni, sínum frábærann dans. Svo sannarlega smitandi og skemmtileg upplifun.
Á föstudeginum var svo lokahóf sem er líka orðið með hefðbundnu sniði. Þar keppa Lækjarás og Bjarkarás í íþróttum. Að þessu sinni var farið í fram fram fylking til að hrista hópana saman svo var keppt í reiptogi, boðhlaupi og kubb. Yfirmenn staðana kepptu svo að venju í pokahlaupi. Að lokum var svo grillpartý til að enda skemmtilega viku.
Heilsuvikan heppnaðist mjög vel og vorum við óvenju heppin með veður
Hægt er að smella á myndina til að sjá fleiri myndir.





