Um setrið
ÞEKKINGARSETUR UM FÉLAGSTENGSL OG KYNÍMYND
Ás styrktarfélag opnaði formlega þann 15. febrúar 2007 þekkingarsetur um félagstengsl og kynímynd. Setrið er upplýsingamiðstöð sem stuðlar að samstarfi við aðrar þjónustustofanir í samfélaginu til að mæta þörfum fólks í tengslum við þætti sem varðar lífsleikni. Þá veitir setrið ráðgjöf til einstaklinga og stofnanna og stendur fyrir námskeiðum fyrir fatlaða, aðstandendur og starfsfólk.
Verkefni setursins eru að stuðla að:
|
Af hverju þarf að efla lífsleiknikennslu:
Ungmenni með þroskahömlun fá sömu eða svipaða kennslu í lífsleikni og kynfræðslu og jafnaldrar þeirra í grunn- og framhaldskólum. Skólinn veitir hins vegar bara hluta af þeirri fræðslu sem fólk fær almennt. Við lærum ekki síður af umhverfi okkar, utan veggja skólans með því að lesa í það sem við sjáum, heyrum, lesum og túlkum úr fjölmiðlum og frá vinum okkar. Vegna greindarskerðingar hefur fólk með þroskahömlun oft ekki hæfileika til að lesa í umhverfið og yfirfæra þekkingu sína þannig að vel takist. Auk þess eru félagsleg einangrun og fá tækifæri til að prófa sig áfram oft fylgifiskur fötlunar.
Kynfræðsla eða lífsleiknikennsla eins og hún er nefnd í dag snýst ekki einvörðungu um kynlíf heldur miklu fleira, eins og t.d. félagsleg samskipt og sambönd. Að læra á líkama sinn, tilfinningar, rétt og ábyrgð lærist ekki eingöngu innan skólastofunar. Heldur þarf sú fræðsla að vera samofin uppeldi og skólagöngu frá upphafi langt fram á fullorðinsár og hana þarf að setja í samhengi við atburði úr daglegu lífi fólks, það auðveldar yfirfærsluna fyrir þá sem verða fræðslunar aðnjótandi.
Ás styrktarfélag
Þekkingarsetur um félagstengsl og kynímynd
Skipholti 50c
105 Reykjavík
Sími: 414-0500
Fax: 561-5919
Netfang: maria@styrktarfelag.is





