Útgáfa og kennsluefni
|
Að verða fullorðinn (På vej til voksen). Höfundar: Anette Løwert og Karsten Løt Kennsluefnið samanstendur af ljósmyndamöppu og kennsluleiðbeiningum. Íslensk þýðing á kennsluleiðbeingum fylgir með. Efnið býður upp á gnótt hugmynda og tillagna en um leið er það einfalt og vel upp byggt að sérhver kennari getur fært sér það í nyt. Efnið samanstendur af glærum, myndum og vel uppbyggðum kennsluleiðbeiningum með góðu efnisyfirliti og tilvísunum í skylt lesefni, bæklinga, myndbönd, kennsluspil og heimasíður. Að verða fullorðinn hentar öllum aldurshópum, þ.e. frá 10 ára aldri og fram á fullorðinsár. Það er hinsvegar kennarans eða leiðbeinandans að velja hvað hentar í samræmi við aldur og þroska hvers og eins.
Verð kr. 18.000 Panta þessa bók: aslaug@styrktarfelag.is
|
|
|
Gott hjá þér! (Thumps Up!) Gott hjá þér! er fræðsluefni um ákveðniþjálfun sem ætlað er fagfólki og öðrum sem vinna með fötluðu fólki. Í bókinni má finna mikið úrval af ýmsum skemmtilegum verkefnum sem hafa það að markmiði að efla sjálfstraust og auka hæfileikann til að verða ákveðnari og takast á við að takast á við þær áskoranir sem fólk stendur oft frammi fyrir við ýmsar athafnir daglegs lífs. Meðal annars er fjallað um eftirfarandi þætti:
Verð: kr. 28.000 Panta þessa bók: aslaug@styrktarfelag.is
|
|
|
Verum örugg Verum örugg er kennsluefni sem sett er upp í námskeiðsformi og ætlað fóki með þroskahömlun 18 ára og eldra. Efnistök byggjast í fyrsta lagi á sjálfsstyrkingu, í öðru lagi á að læra að greina kynferðislega misnotkun og í þriðja lagi hvað sé hægt að gera til þess að tryggja öryggi sitt sem best. Kennsluefnið er unnið í samstarfi við Landssamtökin Þroskahjálp og Fjölmennt - símenntunarmiðstöð fyrir fatlað fólk. Kennsluefnið samanstendur af:
Handbókin og vinnubókin eru til sölu hjá Ási styrktarfélagi. Nánari upplýsingar veitir María Jónsdóttir í síma 414 0500 eða á maria@styrktarfelag.is |
|
|
Picture yourself 2 Kennsluefni á geisladisk með 192 myndum sem skipt er upp í ákveðin þemu. Efnið er sérstaklega hannað og ætlað fyrir fólk með þroskahömlun. Hægt er að prenta myndirnar út eftir vild og eru gæði þeirra mjög góð.
Þemun eru: Höfundur: Hilary Dixon. Nánari upplýsingar um kennsluefnið og kaup á geisladisknum er að finna á neðangreindri slóð. |
|
Ás styrktarfélag
Þekkingarsetur um félagstengsl og kynímynd
Skipholti 50c
105 Reykjavík
Sími: 414-0500
Fax: 561-5919
Netfang: maria@styrktarfelag.is





