Stefnur
Ás styrktarfélag hefur frá upphafi verið brautryðjandi í þjónustu við fólk með þroskahömlun, enda var brýnasta hagsmunamálið við stofnun félagsins 1958, að koma á fót og reka heimili á þessu sviði. Í dag hefur mikil breyting orðið á til batnaðar á mörgum sviðum þó enn sé margt ógert.
Ás styrktarfélag hefur á undanförnum árum stundað margskonar stefnumótunnarvinnu. Á fyrstu árunum var það hugsjónin sem dróg vagninn með þeirri stefnu að brydda uppá nýjungum og auka og bæta þjónustu við fatlaða á margvíslegan hátt. Þetta sést vel í sögu félagsins.
Hin síðari ár eftir því sem félagið varð umfangsmeira í rekstri hefur stefnumótunin verið í höndum virkrar stjórnar félagsins og forstöðufólki þess.
Í október 1999 var fjögurra manna starfshópi falið að vinna að nýrri stefnumörkun til næstu ára. Afurðin varð skýrsla: Skýrsla starfshóps um málefni Styrktarfélags vangefinna, frá 7. mars 2000. Fjallað var um skýrsluna á fundum stjórnar þetta vor og hún kynnt á aðalfundi félagsins. Hópurinn leit svo á með réttu, að stefnumótun er ekki eitthvað sem unnið er einu sinni á margra ára fresti heldur eitthvað sem stöðugt er í gangi.
Nauðsynlegt er að líta yfir farinn veg og endurmeta stöðuna á nokkurra ára fresti með frekari stefnumótunarvinnu. Nýju átaki var hrundið af stað síðla hausts 2001. Greiningarvinnu lauk að hausti 2002. Í framhaldi af þeirri vinnu var hafist handa við að skrifa stefnur til næstu 10 ára fyrir félagið í hinum ýmsu málaflokkum. Þessar stefnur hafa síðan verið endurskoðaðar og nýjum stefnum bætt við.
Árið 2008 fór stjórn félagsins yfir stefnurnar með það fyrir augum að þær styddust við nýjustu hugmyndafræði varðandi málefni fatlaðra, farið var yfir orðalag og nýja nafni félagsins bætt inn í stað þess gamla.
Hér er hægt að nálgast allar stefnurnar í einu PDF - skjali





