Aðstandendastefna
Aðstandendastefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 er að leggja ríka áherslu á gott samstarf við foreldra og/eða nána aðstandendur og gera starfsemi félagins sýnilega þeim. Aðstandendum standi til boða aðstoð og upplýsingar eftir þörfum og tilefnum, sérstaklega við breytingu á högum, eins og flutning í búsetu og/eða dagþjónustu hjá félaginu. Standa ber vörð um að fjarlægð myndist ekki á milli þjónustuveitanda og notenda þjónustunnar.
Í stefnunni felst m. a.:
• Að allir fái kynningu á starfsemi félagsins áður en þjónusta hefst.
• Að ávallt sé kappkostað að veita aðstandendum góða þjónustu.
• Að aðstandendur geti óhindrað leitað til félagsins með mál sín, eftir þörfum, og fengið aðstoð við úrlausn þeirra.
• Að aðstandendur hafi aðgang að gögnum er varða einstaklinginn s.s. upplýsingar varðandi heilsufar, bókhald og annað.
• Að fundir með aðstandendum séu haldnir minnst einu sinni á ári - oftar sé þess óskað.
• Að aðstandendum séu kynntar leiðir til að þess að hafa áhrif á starf félagsins – t.d. með því að gerast félagar og sækja fundi og fræðslu á vegum félagsins.
• Að heimasíða sé aðgengileg. Hlutverk hennar sé að vera miðill upplýsinga um m.a. fræðslutilboð, stofnanir og félög sem vinna að málefnum fatlaðra.
• Að halda kynningar og fræðslufundi fyrir aðstandendur og starfsfólk, með það að leiðarljósi að starfsfólk og aðstandendur séu samstíga í hugmyndafræði og markmiðum að einstaklingsmiðaðri þjónustu.
• Að til sé vinnuferli þegar aðstandendur eru af erlendum uppruna eða búa við einhverja þá fötlun sem skerðir möguleika þeirra á hefðbundnum boðleiðum, eins og töluðu máli eða texta, á íslensku.





