Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Búsetustefna

Búsetustefna Áss styrktarfélags 2008 – 2015 er að leita nýrra leiða í búsetuúrræðum fyrir fólk með þroskahömlun. Félagið einsetur sér að vinna að þróunarstarfi og leita leiða til aukinna lífsgæða í samstarfi við íbúa og aðstandendur þeirra. Full þörf er á fjölbreyttum íbúðaúrræðum svo sem íbúðakjörnum, íbúðasambýlum og sjálfstæðri búsetu.

 

Stefna styrktarfélagsins er að virða rétt einstaklingsins til sjálfstæðis eins og kostur er.

  

Í því felst meðal annars að:

 

• Hafa fjölbreytt búsetuúrræði í boði.
• Fólk geti valið sér búsetuform í samræmi við óskir sínar og þarfir.
• Fólk hafi val um með hverjum og hvar það býr.
• Veita einstaklingsmiðaða þjónustu og að sjálfsákvörðunarréttur verði virtur.
• Fólk fái að eldast með reisn heima hjá sér.
• Starfsmannaaðstaða sé ekki inni í einkarýmum íbúa og, þar sem því verður við komið, ekki hluti af íbúðahúsnæði.
• Fjöldi íbúa á herbergjasambýlum verði að hámarki 3 - 4.
• Í hverju íbúðasambýli verði að hámarki 4 - 6 íbúðir.
• Félagið haldi áfram, í samvinnu við íbúa og aðstandendur, að vinna að rekstri og nýjungum í búsetutilboðum.
• Félagið beiti sér fyrir styttingu biðlista í samræmi við stefnu þess í búsetumálum.

Prentvæn útgáfa (PDF)


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir